12.8.2021 kl. 10:07

Sturlunin í fyrra er grín hjá sturluninni í ár

Aðeins þegar fólk flýr Faraó, hrynur Píramídinn hans. Það er hægt að flýja öll ríki og stofna flóttamannabúðir. Að reyna að halda í það sem þú hefur, í siðmenningu sem er hrunin, er sturlun, þó þú teljir þig vaknaða[n].
 
Líttu í kringum þig á vellystingar umskiptinga (Golem) og uppskafninga (Gargoyle), veröldin er sturluð. Innan við 1% er ósturlað og jafnvel sá hópur sér ekki leiðina út því Guð slær þá blindu sem ekki vilja sjá, eins og margir spámenn liðinna alda sáu fyrir.
 
Umskiptingar sjá bara það Aladíns teppi sem þeir búa á, eins er með Uppskafninga sem vöknuðu af því og stukku yfir á annað. Í báðum hópum eru Uppvakningar sem leiða sína hjörð. Fyrst þegar þetta módel var útskýrt fyrir samtíma okkar af spámanni Guðs hljómaði það "klikk" en í dag er það fullsannað.
 
Sem er hræðileg niðurstaða. Allir hafa á einn eða annan hátt valið að dáleiðast af Gorgoninu mikla, Medúsu, sem er einn af föllnu englum Samaels að leika sér að þér, nánar tiltekið ljósengill skurðgoðanna.
 
Lyfjastofnun var að senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu Lyfjastofnunar Evrópu og Sóttvarnamiðstöðvar Evrópu. Hún hefst svohljóðandi:
"Vegna aukinnar útbreiðslu Delta afbrigðis SARS-CoV-2 veirunnar í ESB/EES löndum hvetja Lyfjastofnun Evrópu (EMA) og evrópska sóttvarnarmiðstöðin (ECDC) alla þá sem hafa ekki verið bólusettir en eru gjaldgengir í bólusetningu, eindregið til þess að hefja og ljúka ráðlögðum bólusetningum vegna COVID-19 tímanlega."
Ekkert í þessum texta stenst neina vísindarýni, ekki neitt. Fyrir þá sem fylgst hafa með vísindaumræðum um það sem er í gangi, er textinn í raun glæpsamlegur.
 
Vottorð, bólusetningar, yfirlýsingar um afbrigði, fyrir utan vírusinn sjálfan, skilgreining á sjúkdómnum (sem er mjög fálmkenndur miðað við sambærilega öndunarfærasjúkdóma), stjórnvaldsákvarðanir þjóðríkjanna (í hlýðni við WHO og IMF) standast engin faraldursfræði á nokkurn hátt.
 
Sem dæmi er vitað að dauðsfallatölfræði dróst saman árið 2020 um allan heim en er nú í hröðum vexti, auk veikinda. Raunsætt mat hlýtur að vega hér inn lífshættulega grímunotkun og gjörsamlega geðveika notkun á tilraunaefnum sem nú er fullsannað að hafa ekkert að gera með hina fálmkenndu veikindaskilgreiningu.
 
Það er því miður tilgangslaust að ræða neitt raunsæi við einn né neinn. Spádómarnir eru að rætast, vissulega, en þeir sem sjá það geta heldur ekki rætt það því fullnustan er ekki efnislega (Materialism) eftir orðréttu rýni á textana heldur kviklegt (Dynamic).
 
Allt fólk sér heiminn í gegnum blöndu af sjö heimssýnum, hver sýn hefur þrjár megin túlkanir eða útfærslur. Svipað og ljósmyndavél sér eitthvað en prentar það á filmu eða myndflögu, þannig verður sýn að mynd.
 
Allt hefur framhlið, bakhlið og jaðar. Reiknir þú flatarmál tíu krónu penings, er flatarmál fram- og bakhliðar jöfn, en hvert er flatarmál jaðarsins? Sjá upplýsingar um 10 krónu mynt á seðlabanki.is en hægt er að reikna framangreint út frá þvermáli og þykkt:
 
"Sett í umferð árið 1984. Þvermál 27,5 mm, þykkt 1,78 mm og þyngd 8,0 grömm. Málmblandan er úr kopar, 75%, og nikkel, 25%. Röndin er riffluð. Á framhlið er stílfærð mynd af landvættum eins og á öðrum myntum, en á bakhlið er mynd af loðnu. 

Árið 1996 var sett í umferð 10 króna mynt gerð úr annarri málmblöndu. Málmurinn í henni er nikkelhúðað stál og þyngdin er 6,9 grömm. Gerðin er að öðru leyti eins."

 
Þannig virka heimssýnir og þess vegna er hægt að ræða þær frá mörgum hliðum, eins og flatarmál þríhyrnings á tvívíðri teikningu, eða Píramídí í þrívíðri! Þannig margfaldar maður sjö sinnum þrjá og fær út tuttuguogeina heimsmynd upp úr sjö heimssýnum.
Allar blekkingar byggja á þessu, meðan þú horfir á bakhlið eða framhlið - meginstraums eða jaðarstraums - gleymir þú hinni hliðinni og sérð því nær aldrei þá þriðju, jaðarinn, sem þó vegur mest því þaðan sérðu hinar tvær nær fullskýrt.
 
Þegar engill sáttmáls arkarinnar - Erkiengillinn Mikael - skammaði sjö ljósengla safnaðanna sjö, í Opinberunarbók Jóhannesar, skammaði hann bræður sína sjö sem eru í innsta hring Samaels, ljósengilsins magnaða og ógurlega, sem fengið hefur að tæla mannkynið með blekkingum sínum frá því hann fyrst blekkti Evu fyrir 5.781 ári.
 
Þessar þrususkammir voru okkur dulinn leyndardómur þar til Guð opnaði fyrir skilning á þessu árin 2012 til 2014, en hefur síðan verið margútskýrður m.a. á enska vef mínum logostal.com. Föllnu englarnir tæla þig inn í sjálfsblekkingu sem fyrirmunar þér að leita til Skaparans eftir frelsun og réttlæti.
 
Tælinguna má útskýra með ýmsu móti, Medúsu-garður meitlaranna er ein slík útskýring.
 
Garður Medúsu er samansafn af fólki sem lætur hugmyndahvísl snákahárs hennar dáleiða sig inn í ýmsa sannleika, og þar steingerist hugur þeirra; Fangar hennar eru þannig lifandi myndastyttur. Medúsa sjálf er af ætt Gorgon vætta; Gorgonið smalar í Garð sinn, Gólem-um, Gargoyle-um og Ghoul-um - þetta er táknfræði 5G bylgjunnar (fyrir þá sem hafa kímni fyrir líkindunum).
 
Grínið er samt stóra Gið í merki Frímúrara - sem er þekktasta starfsfélag Meitlara og táknar stafsmerkið meitlun sálarinnar, eða Gorgonfræði, sem brjóta ellefta boðorð Guðdómlega sáttmálans!
 
Fyrrgreint módel er frumspekilegt en svo er til raunveruleg útfærsla þess á jaðri hins efnislega (Physics) og frumspekilega (Metaphysics), en það eru mörg hundruð Píramídar dreifðir um alla jörðina (og margir á allt að 90 metra dýpi) sem meitlarar hafa byggt í gegnum aldirnar og nota til að snara svart ljós sólkerfisins og nota það til að smala sálarorku fólks saman í trektir og þaðan miðstýra huga og sýn fólks eftir launhelgum sínum.
 
Auðvitað trúir þú ekki að til sé svart ljós og svart efni! Fólk glottir og segir "nú fórstu yfir strikið."
 
Staðreyndin er sú að dulspekifræði Húmanista sem hafa umbreytt vísindunum í húmanistadulspeki fullyrðir í stjarneðlisfræði sinni (byggðri á rangtúlkunum á eðlisfræði Newton (Newtonian physics) að áttatíuogfimm prósent alls efnis sé svartefni eða hulduefni og að tuttuguogsjö prósent alls þyngarafls sé þetta efni - en kenningaeðlisfræði (Theoretical Physics) þessa sama Húmanistaskóla hefur rökrætt að allt efni sé í grunninn úr ljósi.
 
Húmanistavefurinn Wikipedia getur frætt þig nánar um svartefni. Ritgerð mín um Húmanistadulspeki á hreinberg.is frá í fyrrasumar fer dýpra í þetta málefni ásamt þeirri Covid geðbilun sem gripið hefur sálir fólks.
 
Ég hefði getað tuðað um Covid nítján í þessari færslu en ekkert um þær launhelgar stenst neitt raunsæi og þegar maður er búinn að eyða átján mánuðum eins og rjúpan við staurinn að benda Píramídafólki Medúsu á að rökrétt óraunsæi sé sturlun, þá endar maður eins og mús á músarhjóli.
 
Stundum þarf maður að stökkva yfir á annað músarhjól til að sjá alla jaðrana.
 
Sjáðu til: Guð vill ekki að ég sé að gera myndskeiða eintölin mín lengur, í það minnsta ekki opinberlega. Ég tuða smávegis ennþá en þau myndskeið eru aðeins aðgengileg fyrir fullþjálfaða og þrautreynda perlukafara.
 
Ég verð hins vegar að fá smávegis útrás, það er eina ástæðan fyrir sprikli mínu hér á blog.is upp á síðkastið. Ég er í þerapíu, þú ert þögli þerapistinn minn. Sjáumst í næstu færslu. Ef ég þekki samtíma okkar rétt, verður nóg í boði frá sturlun heimsmenningarinnar til að tuða yfir.
 
 
Smávegis í blálokin. Árið 1312 BC - sem er ártalið 2448 AM - yfirgaf Móse heimsveldi Faraó og tíundi hluti Egypskra Hebrea fór með honum. Sama ár sprakk Abu Rawash Píramídinn í loft upp og steinblokkir hans þeyttust í allar áttir. Rústir hans eru nánast steinsnar frá frægustu Píramídunum þrem á Giza sléttunni. Þegar Guð sýndi mér snemma árið 2018 að við þurfum að eyða öllum Píramídunum, hélt fólk að ég væri orðinn geggjaður, nú er öll veröldin orðin snar.
 
Í maí 2018 opinberaði Guð mér hvað Guðdómlegi sáttmálinn merkir og í tuttuguogtvo mánuði, þar til í mars 2020, var sú útskýring kunngerð öllum heiminum, rétt eins og Jesú Maríuson hafði spáð fyrir: Hvað er Guðdómlega ríkið, hvað merkir það, hvernig útfærist það, hvernig er það skilgreint og hjúpað, hverju er sleppt í því.
 
Öll veröldin sem er uppalin af ljósenglunum sjö sem stýra milljónum Serafa og Kerúba sem fylgja Samael (Satan, Lúsífer) að málum, meina þér að sjá leiðina út úr Medúsugarði Píramídanna. Tær snilld!
 
Tökum lokasnúning:
 
Ef þú ert Kristinn, þá ertu Míþraisti, sem eru Píramídafræði byggð upp af forföður Klaus Schwab, Konstantín mikla, keisara sem fyrirleit boðskap Nasarenans Jósúa Maríusonar. Míþraisminn sem flestir kalla Kristni, er ein af sýnum ljósenglanna sjö. Kristna kerfið er afleiðing af "the great reset of Constantin the great in 325 AD."
 
Svona mætti lengi telja. Heimskerfi Samaels er núna að fremja heimssjálfsmorð meðal annars með því að breyta blóðinu á lömbunum sínum í steinryk.
Samael sjálfur var veiddur og handsamaður á tímabilinu janúar 2013 til apríl 2014: Síðan þá hefur ringulreið ríkt meðal ráðherra hans sjö. Samael, eða Satan, hefur ávallt beitt tælingu og loddun, þeir sem næst honum voru gera það ekki, þeir smala þér saman af fyllstu hörku með málamyndablekkingu sem réttlætingu.