19.11.2020 kl. 13:01

Roði af varalit eða lofnarlofi

Kommúnistar eru snillíngar í að eyðileggja allt sem þeir snerta á og grunnhugsun þeirra byggist á þykjustuleikjum og lygum. Eitt besta útspil þeirra er þegar þeir koma sínu eigin fólki fyrir í röðum íhaldsfólks - eða í trúfélögum og kirkjum - sem oft er þar árum saman að vinna sig upp stigann þar til það nær nægilegum toppi til að eyðileggja alla bygginguna.

Þegar kommúnistinn Sigríður Á. Andersen segir "við tölum við alla, en ekki við konspírasý þeórista" var hún í raun að segja "sovétlýðveldið er bara fyrir elítuna og lýðræði er merkingarlaus fáni." Þegar Páfinn lýsti yfir að kapítalismi, loftslagsbreytingar af mannavöldum, eða að Kína mætti skipa kaþólska biskupa, lýsti hann því yfir að Kaþólska kirkjan - leiðtogi flestra kristinna hreyfinga - væri ómerkileg deild innan sovéska heimsríkisins.

Þegar Trotský-Marxistinn Tony Blair þóttist verða kaþólskur, hóf hann einmitt samstarf með þáverandi og sérstaklega núverandi páfa, að undirbúa ChrIslam (sem er með alþjóðlegan bænadag á vordögum) undir kommúnista verkefninu "Unified Faith Initiative."

Zíoniskir sósíalistar sem komu af stað "Jewish Reformation" undir pilsfaldi "Emancipation" aðgerðar Napóleóns, í upphafi nítjándu aldar, voru allt útlægir kjánar, sem reknir höfðu verið úr gettóum Gyðinga. Þegar þeir þóttust vera gyðingar, þekkti fólk í Evrópu og Bandaríkjunum ekki muninn, frá gyðingunum sem höfðu misst gettóin sín.

Þessir plat-gyðingar breyttu síðar "Jewish Reformation" í Zíonisma (í samstarfskrafti sósíalistanna David Lloyd George og Theodor Herzl), en áður höfðu þeir í samstarfi við aðra kristna sósíalista endurnefnt bæði Gyðingdóm og Kristni og kallað "Judeo-Christianity."

Þeim tókst, á rúmri öld, að tæla alla heimsbyggðina inn í þann þvætting, svo bæði Gyðingdómur og Kristni eru núna geld fyrirbæri. Hvenær þeir breyta Hindúisma og Búddisma í Húbbisma, er aðeins tímaspursmál. Margir hafa vafalaust tekið eftir hvernig menningarelíta þeirra hefur markaðssett Húbbisma á vesturlöndum síðustu fimm áratugina.

Ef þú þekkir ekki merkingarfræði þá kemur hún aftan að þér þegar Marxistinn hefur umsnúið henni.

Ég bendi reglulega á að til að þekkja úr sundur kommúnista frá öðrum, þá sérstaklega þegar þeir ala útsendara í andstæðum hreyfingum til að breyta þeim í "stýrða andstöðu" þá þarftu að þekkja hugmyndirnar sem þeir trúa á en til þess þarftu að þekkja söguna og merkingarfræðina.

Þegar Boris Johnson gerðist leiðtogi Breskra Íhaldsmanna, gerði hann það á grundvelli slagorða. Mikið af íhaldssömum kverúlöntum höfðu lengi bent á að Boris er innihaldslaus slagorðabrúða, en það er einmitt það síðarnefnda sem kom honum á toppinn. "Build back better" eða "Get Brexit done" eru fín dæmi um innihaldslaus slagorð.

Rifjum upp að mesta hetja Boris Johnson er Winston Spencer Churchill, frændi William og Harry; Mesti lygari og þjóðamorðingi allra tíma, sem rústaði Breska heimsveldinu og þóttist bæði vera Sósíalisti og Íhaldsmaður - en var ásamt FDR ómerkilegur 33ju gráðu meitlari.

Margir vita hver Alexandria Ocasio-Cortez er, eða AOC, öfga sósíalisti í Bandaríska Demókrataflokknum sem trúir á það sem hún nefnir "Green new deal."

Barnalegar og klaufalegar hugmyndir um nýtt sovéskt efnahagsveldi, byggt á  miðstýringu og kæfandi ofbeldi í ætt við fimm ára áætlanir Stalíns, sem þjóna betur miðstjórn heims-kommúnismans en nátturulegu og heilbrigðu menningar- og efnahagslífi.

Eins og margir vita heitir miðstjórn sovéska heims-kommúnismans  í dag "World Economic Forum" og eru allir helstu spilararnir í þeirri grúppu einnig í grúppunni sem núna notar Covid til að rústa heimsmenningunni. Þeir sem hafa lagt sig eftir því, vita að þessi árás hefur lagst fimmfalt harðar á fimm öflugustu menningarríki heimsins og aðeins í orði kveðnu á hin.

Ítalía, Þýskaland, Frakkland, Bretland og Bandaríkin eru nú rústir einar. Kína, Rússland og Japan eru því sem nær ósnert. Rússar og Japanir þykjast stundum hafa einhver smit, en læknamafía Rússa hefur margsannað allar götur síðan í apríl að þeir sáu hvað var í vændum fyrir tveim til þrem árum og voru undirbúnir.

Ég minni á að það tekur tvö til fimm ár að þróa bóluefni, einnig þegar vírusinn hefur ekki verið einangraður.

Bóluefnin sem fyrir galdra eru að birtast núna, eru öll tveggja ára gömul. Enginn ræðir vísindin; Hver hefur einangrað vírusinn, hvaða sjúkómar hafa sama birtingarform og Covid-19, hvað er PCR skimun og hversu marktæk er hún?

Ég gerði stundum grín að því í fyrra að Yeltsin og Johnson eru bæði sjö stafa orð og minnti á að Boris Yeltsin var alla tíð á valdi MI56 og CIA, frá því hann var ungur stjórnmálamaður í Sovét. Hann ásamt Gorbetsjev lagði niður Sovétríkin og rústaði síðan Rússslandi.Sæirðu fyrir þér að Joe Biden myndi segja eins og Gorbatsjef "ég leysi nú upp Sovétríkin/Bandaríkin?"

Ég notaði þessa sjö stafa dulspeki - en mín dulspeki hefur aldrei þóst vera vísindi - til að sýna hvernig báðir Bóris-arnir væru af sama meið. Helg dulspeki virkar jú betur en þykjustuvísindi.

Nú var Boris Yelt-hnson að gefa út hvað "Build back better" merkir: Tíu skrefa Green New Deal fyrirbæri sem mun klára rústun á Bresku efnahags- og menningarlífi. Til hamingju vesturlönd, við erum hrunin og þeir sem rifu okkur niður, er okkar eigið fólk.

https://www.oedigital.com/news/483300-uk-boris-johnson-outlines-10-point-green-plan-with-up-to-250-000-jobs

Niðurlag

Þegar ég nota orðið Kommúnismi, er það meira af vana en ásetningi, en einnig því það er orð sem fólk þekkir. Kommúnismi átjándu og nítjándu aldar var áhugaverð stjórnmálastefna og margt gott sem kemur frá kommúnisma. Það sem við þekkjum sem kommúnisma í dag, er í rauninni Marxismi - sem fræðilega heitir Dialectical Materialism. Í rauninni er kommúnismi yfirtekinn og umsnúinn af Marxisma, rétt eins og Júdeó-Kristíanity bullið og margt annað í menningunni. Dialectical Materialism er í í raunni Diabolical Monstrosity, sálfræðiflækja sem þykist vera heimspeki, og næsta öld fer í það að þróa heimspekileg tól til að hreinsa þetta eitur út úr mannlegri hugsun, svo sýn Nítsje nái að frjóvgast. Ef Hómó Sapiens Sapiens getur ekki hreinsað eigin huga, mun hann kafna úr eigin umsnúna orðastormi.

Ég minni á Opinberunarbókina 2:9 og 3:9 (en bezta þýðingin á Biblíunni að mínu mati er á ebible.org) þar sem Synagógu Satans er lýst, þeir sem þykjast vera Gyðingar en eru það ekki. Þetta á við Marxisma í heild sinni, en Zíonistar sem hafa stolið gyðingdóm eru flestir Marxistar en nokkrir þeirra eru Fasistar (Þjóðernis-sósíalistar) - en fólk gleymir oft að öfga-sósíalistar skiptast jafnt á Marxisma og Fasisma, en báðir eru sama tóbakið.

Eins og meistari Jósúa Maríuson sagði, faðir þeirra er Satan, faðir lýginnar.

Fyrst ég er kominn út í trúmálin: Ekki hafa of miklar áhyggjur af því sem er í gangi núna, Covid-lýgin er leyfð af ástæðu. Þegar innsiglin sjö voru opnuð árin 1965 til 1975, var Guðdómlega innblásinn listamaður sem söng meðfram þeim, sumir áttuðu sig á hvað var í gangi, aðrir átta sig aldrei. Nú geysar borgarastríð meðal hinna sjö ljósengla sem hafa verið í innsta hring Samaels, síðustu sex þúsund árin, þeir vita hvað er í gangi en sjálf-dáleiddir hlustendur þeirra neita að sjá.

 

Wipe away transgression, set the captives free! Movement of Jah people.

Úr einu í annað: Meirihluti af rafhlöðum í rafbílum eru framleiddar í Kommúnista-kína og nær allar þessar eitruðu rafhlöður eru settar í landfyllingar að notkun lokinni (en þær endast stutt). Nú veistu hver fjármagnar áróðurinn sem leggur niður Díselbílinn og markaðssetur rafbílinn. Þeir sömu og hafa lagt niður stálframleiðslu Evrópu og Bandaríkjanna, og síðan byggt upp stálframleiðslu heimsins í Kína. Ef þú veist eitthvað um efnahagssögu þá veistu hvað þetta merkir. Ef þú heldur að fræðsla og fréttir á vesturlöndum sé sjálfsprottin og ekki miðstýrð, þá áttu ekki að lesa færslurnar mínar heldur glápa meira á Kastljós.