9.9.2020 kl. 12:27

Sætar stelpur mega ekki skemmta sér

Tveir fótboltastrákar fara uppá herbergi með tveim sætum stelpum. Slíkt hefur nottla aldrei gerst neins staðar áður í sögunni? Þá kemur Þríeykið og fjölmiðlarnir, sem eru nýbúin að rústa heilu þjóðfélagi og dæmir fyrst strákana og síðan stelpurnar.

Eini spuninn hér er opinberi spuninn. Alltsaman stormur í vatnsglasi sem leiðir sjónir fólks frá hinum raunverulega glæp. Allt saman miðað til að ná athygli ákveðinna aldurshópa.

Ómerkileg þjóðfélagsverkfræði. Eða víðáttuhallærislegur spuni. Glært í gegn.

Eina fólkið sem er að hrekkja þessar stelpur eru annars vegar örfáir einfeldningar og tröll úr gervigrasrót (Astroturf) öfgasósíalismans og hins vegar opinbert og óopinbert valdakerfi Lýðveldisins.