12.7.2015 kl. 02:38
Þetta hlýtur að fara bara
Alveg sama hversu djúpt þjóðin stingur hausnum í sandinn. Alveg sama hversu hátt og lengi sé tónað Þetta reddast, Íslenska lögreglan má skjóta þig, Íslenski ríkissaksóknarinn mun blessa það, Innanríkisráðherra og Alþingi mun líta í hina áttina og ábyrgðar maður Lýðveldisins og allrar spillingar þess, forseti Íslands, mun brosa sínu blíðasta.
Rétt að leiðrétta fáein mistök í þessari færslu: Íslenska lögreglan, Íslenski ríkissaksóknarinn, Innanríkisráðherra, Alþingi og forseti, eiga hér í öllum tilfellum við fyrirbæri innan Íslenska lýðveldissins frá 1944 - sem er ekki Ísland, ekki Íslenzka þjóðin og á EKKERT sameiginlegt með Þjóðveldi Íslands.
Lýðveldið er réttnefnt Lýgveldi því yfirborðsmennska þess, gerræðislegir og siðlausir starfshættir, og sá orðhengilsháttur að kenna það við Lýðræði er Lýgi.
Þú vissir auðvitað að forsetinn er tákngervingur, og ábyrgðarmaður, Valdstjórnar, Lýðveldisins og Stjórnarskrárinnar, því þú hefur menntað þig í stjórnarskrám, eins og sannur lýðræðismaður og þegn - AFSAkIÐ - borgari.
- Stjórnarskrá Íslenska Lýðveldisins frá 1944
- Stjórnarskrá Þjóðveldis
- Spuninn frá 2012
- Frjálsa stjórnarskráin
- Stjórnarskrá Frakklands
- Stjórnarskrá Konungsríkisins Ísland frá 1918
- Stjórnarskrá Bandaríkja Norður Ameríku
- Stjórnarskrá Bretlands - Magna Carta
- Stjórnarskrá Napóleons
- Stjórnarskrá Rússneska sambandsríkisins
- Stjórnarskrá Ráðstjórnarríkjanna
Góðar stundir og þegiðu svo.