2.9.2020 kl. 17:40

Sjö úngar rjúpur fyrir utan gluggann

Í morgun þegar ég fór út með hundana, voru sjö ungar rjúpur á vappi fyrir utan húsið. Þær voru frekar gæfar, lyftu sér upp þegar þær sáu hundana og færðu sig hundrað metra til vesturs.

Þegar ég nálgaðist þær gengu þær hæversklega fyrir horn en þegar ég hélt áfram framhjá því húsi sannfærðust þær um að ég væri Covid-risi að elta þær og þær tóku sig upp og flugu tvö hundruð metrum vestar.

Ég náði tveim lélegum myndum af þeim, einni þar sem þær voru á vappi og einni á flugi, en myndgæðin hamla birtingu. Ég hef aldrei áður séð rjúpur inni í bæ, og aldrei svona margar saman í hóp.

Ég velti því fyrir mér hvað þær voru að segja (en ég nota mikið töluna sjö annars staðar) og hversu margar lægðir séu á leiðinni og hvers vegna engar stofnanir á vesturlöndum, né farsóttamiðlar, segja okkur neitt um efnahagshrunið sem blasir við, eða Sovésku ógnarstjórninni sem verið er að koma á?

Skyldi nokkur miðill hafa sagt okkur frá handtökunni á hinni stórhættulegu Zoe Lee eða stúlkunni sem var grímulaus?

zoe-lee-arrested

Eins og venjulega eru Íslenskir covidmiðlar á fullu að segja okkur að allt sé í gúddí gúddí og fáein smit finnist bak við þúfur og smásteina. Á sama tíma birtir CDC að einungis 6% Covid dauðsfalla séu einungis Covid, hitt sé allt yfirlyggjandi sjúkdómar.

New York Times birtir grein sem segir að mótefnamagnið í "smitgreiningum" sé svo lítið að sé varla marktækt. Enn er enginn farinn að fjalla um PCR skminuna. Engir birta eða fjalla um fjölda jafningjarýndra greina um fánýti þess að bera grímur.

Ég biðst afsökunar á mótþróaröskuninni - ég geng ekki heill til skógar - það er augljóst, ef normalið er það sem okkur er boðið uppá. Mæli samt með að fólk rekji tenglana hér ofar og skoði myndskeiðin, en setji þó sterkt kaffi í bollann sinn.

 

2020-09-01 23_57_31-CDC Bombshell_ Only Six Percent Of _Covid Deaths_ From Only Covid! - YouTube

2020-09-01 23_49_57-CDC Bombshell_ Only Six Percent Of _Covid Deaths_ From Only Covid! - YouTube