28.8.2020 kl. 11:45

Þráttarhyggjuröskun efnishyggjumanna

Marxismi heitir á ensku "Dialectical Materialism" en það er þýtt á Íslensku sem Þráttarefnishyggja. Sorglega léleg þýðing og ég hef leitað að annarri betri síðan ég neyddist til að nota hana í ritgerðinni Vísindadulspeki fyrr í sumar.

Áhangendur Frankfurt skólans beita oft þeirri aðferð að rífast sín á milli fyrir opnum tjöldum til að rugla samfélags samræðuna.

Frankfurt skólinn er ekki alvöru skóli heldur hugtak sem Marxistar nota yfir ákveðna tegund fræða sinna, sem kennd eru við hóp Marxískra kommúnista sem reglulega komu saman í Frankfurt á fyrri hluta tuttugustu aldar.

Á ensku er Frankfurt skólanum lýst þannig: "is a school of social theory and critical philosophy" en ég er óviss hvað Íslenskir fylgjendur þessara fræða nefna það á Íslensku svo ég bíð með að snara þessu. Mér er þó ljóst að margir s.s. Pétur Gunnlaugsson á Útvarpi Sögu lýsa þessu vel á okkar túngu, en man ekki orðasamböndin á þessari stundu.

Ráðgjafahópur Breska ríkisins - Sage - kennir sig við "Thesis Eleven" sem er akademísk heimspeki sprottin út af Frankfurt skólanum.

Meðan Frankfurt skólinn einbeitir sér að sálfræði og menningarbyltingu (Maó sótti í þessa smiðju) til að umsnúa samfélögum og þjóðfélögum einbeitir Elleftukenningar skólinn sér að umsnúningi mannlegrar vitundar og stefnir beinlínis að því sem á ensku heitir annars vegar Transhumanism og hins vegar Post-Phenomenology.

Báðir þessir skólar - sem í rauninni eru ekki heimspeki heldur sálfræði - standa fyrir - rétt eins og Kommúnisminn í öllu sínu veldi - að umsúna menningunni og yfirtaka hana. Efnishyggjan hefur enga dýpri sýn en það, enda gjörsamlega veruleikafirrt (alienated from reality and reason).

Ég bið lesandann afsökunar hversu mikið hér þarf að grípa í ensk hugtök.

Ég er vanari að vinna með þessi mál á ensku og á sumum mörkum þessarar orðræðu erum við ekki komin með liðug hugtök, Íslensk. Ef ég þekki skugga sálar minnar, þá kemur að því að ég set grein inn á hreinberg.is þar sem ég glími við þann Glám.

Sumarið 2017 eyddi ég talsverðri vinnu í að grúska í hinu svokallaða "hruni 2008." Eins og oft gerist með okkur grúskarana rekjum við ekki alltaf línulega punkta heldur stökkvum á milli oft óskyldra steina í streyminu og stöndum svo skyndilega uppi með mynd sem dregin var upp milli fjölda punkta, okkur sjálfum að óvörum og á skjön við það sem okkur er sagt.

Stríð Rússa við Georgíu síðsumar 2008 um Suður Ossetíu var einn þessara punkta. Fjármála stofnanir á vesturlöndum sem Sovétmenn starfræktu undir fölsku flaggi frá 1950 til 1991, beinlínis til að ná undirtökum í vestrænu fjámálalífi var annar.

Hagfræði skólinn sem oft er nefndur Keynesian hagfræði er enn einn punkturinn, en sú hagfræði er fullkomlega Marxísk og var iðkuð af Sovét hagfræðingum og fyrrgreinda fjóra áratugi varð sú hagfræði ofaná í Akademíu vesturlanda. Þegar almenningur sér viðtal við "Jón Jónsson, Hagfræðing" í sósíalísku Rúv eða Stöð 2, veit hann ekki hvers konar hagfræðingur né heldur að til séu annarskonar.

Allir sem eitthvað vita um sósíalisma og öfga-sósíalisma (Kommúnisma) vita hvernig grasrótarstarf þeirra einbeitir sér að "subversion" í gegnum félagsstarf stúdenta og háskólanema um allan heim - og breytir því í gervigrasrót (Astroturf). Þetta starf er undirstaða tilveru þeirra og þeir hafa fágað þessa aðferð allar götur síðan 1850 með fullkomnum árangri.

Það er ástæða fyrir því að yfirstandandi Covid-Kommúnismi er að stöðva félagsstarf háskólanna á komandi vetri.

Frá því að Davíð Oddsyni var ýtt út úr Seðlabankanum rétt eftir hrun, hefur Íslenski Seðlabankinn verið undir stjórn manna sem eru ýmist þekktir sósíalistar eða kommúnistar, og viðurkenna það sjálfir. Allir eru þeir Keynesian hagfræðingar. Smári er sjálfur kommúnisti.

Enginn fjölmiðill hérlendis hefur greint hrunið faglega eða birt réttar upplýsingar um það, en beitt linnulausum heilaþvotti þess í stað. Við búum ekki lengur við frjálst og kvikt (Dynamic) hagkerfi heldur höfum við verið hernumin af Efnishyggju liði sem trúir á sjálfstæðar ofurstofnanir, alþjóðlegar valdastofnanir, og miðstýrt efnahagskerfi.

Það er enginn munur á Hruninu 2008 og Covid-hruninu 2020:

Hvoru tveggja var vandlega útfærð yfirtaka og Subversion og Transhumanismi. Líttu á yfirlýsingar Ásgeirs Jónssonar um efnahagsmál þessa dagana og hafðu í huga orðið firring (Alienation) meðan þú lest. Líttu svo yfir sjónsviðið, hvernig öfga-sósíalískir fjölmiðlar Sovétíslands hræra upp í fólki með "cultural subversion."

Taktu einnig eftir hvernig barnaskólakennarinn þinn undirbjó huga þinn, ekki viljandi heldur óviljandi, því síðan 1950 hefur sósíalisminn aðeins ráðið eina manngerð til kennslu. Ef þú værir vel lesinn í fræðum Marxista - marxists.org - þá þyrfti ég ekki að segja þér neitt af þessu.

Menningin okkar er ekki bara hrunin, hún varð fyrir árás.

Ég biðst afsökunar á að hafa gefið í skyn að Davíð Oddsson sé frjálslyndur, hann er það ekki. Hann virðist mér vera nýfrjálshyggjumaður (Neocon), sem er hugtak fyrir Sósíalista sem þykjast vera frjálshyggjumenn eða trúa að þeir séu það. Þeir eru menningarfyrirbæri sem fæddist á vesturlöndum á sjöunda áratugnum, sem afleiðing af Subversion í háskólum.

Á þeim tuttugu árum sem Davíð var í ríkisstjórn Lýðveldisins og árin sem hann var borgarstjóri, varð risa-bákn Íslenska sovétsins til. Maður þarf ekki að vita í hvaða flokki sósíalistinn er, maður þarf bara að þekkja heimsmyndina sem hann trúir og birtingarform hennar.

Húmanisminn er efnishyggja en sú sýn er víðtæk í myndbirtingu og sumir húmanistar eru frumspekingar (meta-physicians). Sósíalisminn er öfga húmanismi. Kommúnisminn er öfga-sósíalismi. Marxisminn er öfga-kommúnismi. Bóla innaní bólu; Nú er bólan full af greftri sem vaxið hefur stjórnlaust síðan 1850.

Gröfturinn vellur nú út, enginn kann að þrífa sárið né kreista bóluna.

 

doj-snjoboltinn

 ... og þó ... kannski veltur snjóbolti af stað ...

Hef áður bent á að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, sem er í dag kommúnísk stofnun, styður að Þjóðríkin loki efnahag sínum og hótar að gjaldfella lán þeirra sem ekki gera það. Í kjölfarið verður rústum Vesturlanda boðin lán frá Kína og AGS og eftir það verður sjálfstæði þeirra horfið. Lestu yfirlýsingar Ásgeirs Jónssonar í þessu ljósi.

Byggja Byggja, yfirlýsingar, Boris Johnson, Bjaddna Ben og Geira seðils eru allar byggðar á því að hrunið 2020 sem verið að að smíða á grundvelli Vísindadulspeki og þvættings, krefst uppbyggingar í boði kommúnískra lána.

Trump einn virðist skilja þetta. Kannski fær hann greiningar mínar þýddar.