28.7.2020 kl. 12:25

Einbeittur [brota]vilji

Ég hef forðast að fjalla um trúarlegu hliðina á því allsherjar rugli sem heims-kommúnistar eru að smúla jörðina með um þessar mundir. Nú verður þó að vitna í ritninguna; "Ég mun forherða hjörtu þeirra."

Allir vita að ég hef nóg að segja úr trúarlega grunninum, en er búinn að segja það allt mörgum sinnum, það er allt í arkívinu mínu fyrir þá sem íhuga dýpra.

Glæpur gegn mannkyni er það sem nú gengur yfir, hugsanlega gegn Guði. Ef mannkyn hvorki ákærir né kveður upp úr, það er mannkyns. Varðandi glæpi gegn Guði, það er hans að svara fyrir, og þessi spámaður hefur enga ordrung fengið um neinar yfirlýsingar.

Þó ég sé orðhvatur og örlítið ögrandi á stundum, þá hef ég gætt þess vandlega í gegnum árin að virða framangreint. Sumir sjá það, aðrir skipta öngvu.

Það mætti bæta við að þó nokkrir fornir spádómar segja fyrir um að þegar hópi fólks - og í þetta sinn heimsbyggðinni allri - hefur verið gefinn ítarlegur og breiðdjúpur* vitnisburður, þá verður lokað fyrir skilningsgáfur þeirra sem neita að taka við.

Sérstaklega á þetta við þegar vitnisburðurinn boðar það sem fólk hefur beðið eftir.

*Breiðdýpt er vandlega valið orð. Íslenska þjóðin t.d. hóf 40 mánaða útlegð í apríl 2018. Mánuði síðar rættist spádómur Jósúa Maríusonar, að sáttmálinn um Guðdómlega Ríkið yrði boðaður allri heimsbyggðinni í rauntíma.