16.4.2020 kl. 10:46

Alltaf gaman að kenningum

Eins og margir vita er munurinn á fjölmiðlum og samsæringum (Conspiracy Theorists) oft furðulítill, nema "andinn" sem svífur yfir fyrirsögnum og fullyrðingum er mismunandi. Einnig vottunin.

Viðhengd frétt er stútfull af kenningum og dylgjuðum tilgátum, sem þó fjölmiðillinn eignar opinberum starfsmanni. Skemmtileg aðferð.

Það er hins vegar ljóst að helmingur barnsfæðinga á okkar Marxísku Vesturlöndum fer fram með aðstoð hormónagjafa og fleiri úrræða enda húmanista menningin dauð. Lykilorð er orðið Faraldur sem allir trúa gagnrýnislaust.

Í hátt á annan áratug er mannfjöldavexti viðhaldið í Evrópu og Norður Ameríku með innflutningi fólks bæði til að fylla í skörðin en einnig vegna þess að margt innflutt fólk trúir ennþá hugmyndum sem stuðla að náttúrulegum fjölskyldum og nennir að elda mat úr óunnu hráefni.