3.4.2020 kl. 10:46

Vesturlönd hafa tapað glórunni

Á tæpum tveim mánuðum hafa Trotský sinnaðir kommúnistar fryst allt vestrænt efnahagslíf í skjóli mjög illa ígrundaðra fullyrðinga um farsótt sem mjög erfitt er að sanna að séu raunsæjar.

Á þessum tíma hefur Evrópusambandið - sem er kommúnistabatterý - beðið Ítalíu afsökunar fyrir máttleysi sitt, meðan Ítalía nýtur aðstoðar Rússlands, sem Nató ríkin hafa fjandgert með öflugum áróðri síðustu misserin.

Evrópskt og Bandarískt efnahagslíf setur tóninn fyrir allan heiminn en er nú helfrosið, vegna skemmdarverka-áróðurs og vitfyrringar. Hið eina sem Trotský-istar vestrænna stjórnmála gera, er að neyða okkur til að hýrast heima, meðan þeir ala á skelfingu ístöðulausra.

Margir vita hversu gagnrýninn ég hef verið síðasta áratuginn á valda-elítu okkar ástkæra vestræna heims en ég ákvað í upphafi hins svonefnda faraldurs að sleppa gagnrýninni. Afstaðan er sú að meðan hamfarir geysa, þá leggjumst við á árarnar.

Ég hef hins vegar harðlega gagnrýnt, síðustu vikurnar, þá aðila sem nýttu kóróna vírusinn sem tækifæri til að efla gagnrýni sína á stjórnvöld. Á sama tíma hef ég fylgst vandlega með fréttum meginmiðla og einnig jaðarfréttum og jaðar-greiningum.

Eitt af því sem ég hef tekið eftir, er að Dónald Trömp og "Corona Task force" sem hann setti saman, vinnur mjög öflugt og einbeitt starf, mun öflugra en nokkur forystusveit annarra vesturlanda.

Að Íslenskir meginfjölmiðlar ráðist nú á hann, meðan okkar eigin stjórnvöld eru búin að míga undir, er kjánalegt. Að lokum vil ég benda á grein sem ég birti í gær undir heitinu "Þegar djöflum er boðið í vírusa-dans" á hreinberg.is, þar sem ég rökstyð djarfar fullyrðingar mínar sem hér koma fram.