17.8.2014 kl. 21:20

Keisarinn er fullklæddur þó nakinn sé

A Íslandi er enginn opinber staðall sem unnið er eftir varðandi högun í gagnagrunna. Þetta merkir að enginn staðall er til um það hvernig þínar upplýsingar, opinberar sem einka, séu vistaðar niður í tölvukerfi landsins.

Sömuleiðis er engin fagleg rýni til í landinu sem ákvarðar hvort unnið sé eftir þeim stöðlum sem ekki eru til.

Ennfremur er hvergi til nein rýni í öryggsmál eða öryggis uppsetningar hinna opinberu tölvukerfa. Ekki hefur neinn öryggisstaðall verið valinn um aðgengi, öryggi, úrvinnslu, högun, né förgun, á gögnum (lesist: upplýsingar um þig). 

Hvergi er nein umræða innan ríkiskerfisins né utan þess um það hvernig eigi að nálgast þessi vinsælu mál og þeir fáu sem þora að rugga þeim bát eru beittir vægðarlausri þöggun. Þess vegna er ég hissa á að mbl.is birti svo einkennilega frétt eins og þá sem færsla mín er tengd við.

Veit einhver til að mynda eftir hvaða staðli eða verklagsreglu Íslandslykill var valinn og hannaður? Er eitthvað eftirlit með því hvaða aðgang hann opnar þeim sem yfir hann kemst? Á bara að treysta tölvumanninum og Advania fyrir þessu? 

Við höfum öll grunntölvumenntun í skóla. Við höfum öll aðgengi að tölvum. Við erum með bestu menntun í mannkynssögunni og í heiminum öllum. Er nokkuð of flókið að ræða þessi viðkvæmu mál?

Bók mín „Varðmenn kvótans - fiskisaga af einelti“ fjallar á beittan máta um sanna sögu þar sem allir þeir þættir sem ég nefni hér að framan voru eitt flakandi sár hjá Fiskistofu þegar ég var þar. Skyldu þeir hafa verið lagaðir? Hvers vegna er rit mitt þaggað? Benti ég á keisarans nýju?

Hvert fer sannleikurinn þegar hann er þagaður í hel? Hversu seint fyrnist hann? Hvers vegna má hann kosta þig aleiguna? Hvenær og hvernig fyrnast mannréttindabrot? Eða er það ekki mannréttindabrot þegar sparkað er í mann af mínu tagi svo vitnað sé efnislega í þáverandi Fiskistofustjóra?