17.5.2025 kl. 09:02

Fagnaðarlæti morðamafíu

Soldið spes að sjá "leiðtoga hins frjálsa heims" spranga um og láta mynda sig með einum mesta morðhundi okkar tíma, Jólaní, sem hefur skipt svo oft um nafn að maður man ekki hvað hann heitir frá morði til morðs, og fjölmiðlamafían og stjórnmálamafían, hrópar húrra jibbí jei.

Enginn hefur getað sannað nein morð á al-Assad, sem Nató mafían kom frá völdum, og setti þess í stað morðhundinn Jólaní á stólinn. Á sama tíma erum við hin ofsótt fyrir júðahatur ef við gagnrýnum morðæði og stríðsglæpi vinar hans suðvestan við landamærin.

Samtímis þessu eru öll Afríkuríkin að fleygja Nató/Esb ríkjunum úr landi (að fenginni reynslu af þeim) og streyma nú öll í viðskipta-, iðnvæðingar-, og akademíu-fang Rússa; því á Sovéttímanum lærðu þau að Rússum var treystandi.

Stórastamúgsefjunarland hins vegar, sem byggði upp velmegun sína á Sovéttímanum, að mestu fyrir stuðning Rússa, en minnst fyrir "Vesturveldamafíuna," hefur beitt Rússa efnahagshernaði í áratug og ýmist lýsir leiðtoga Rússa sem illum (Evil) eða illmenni (Wicked) og að Rússum sé ekki treystandi.

Stórastamúgsefjunarland, sem er mest sprautaða land í heimi og að því er virðist með minnsta sprautuskaðann.

You cannot make this shite up.

Manstu þegar Bændablaðið var "besti fjölmiðillinn" sem dreift er frítt og þú veist ekki hver heldur þeim uppi; síðustu fimm árin hefur snepillinn verið ólæsilegur vegna áróðursfrétta SÞ kerfisins - eða alþjóðamarxismans.

Eða þegar -elítan- fór - á dögunum - að ræða um njósnir einhvers fjárfestis í samstarfi við spilltar löggur en nú er komið í ljós að Sérstakursýndarsaksóknari virti lög og rétt að vettugi og njósnaði meir; því marxistar voru að yfirtaka bankakerfið eftir að Greiningardeildirnar ýttu Bankastjórnum og Lánþegum fram af bjarginu.

Ha, skyldu vera til fleiri spilltar löggur? Eða fleiri spilltir embættismenn?