14.5.2025 kl. 14:25
Óreiðuskoðanaröskun dagsins - 20250514
Í Efnishyggju og sérstaklega Félagslegri Efnishyggju (Socialist Materialism), er algengt og oft áberandi "skin deep" fólk, sér Kerfið og Innviðina og Efnahaginn, og Auðlindirnar og Hjörðina, sem kyrrlægt (Static) fyrirbæri; það er bara þarna.
Þetta fæðir af sér rökvillur (Fallacies) á borð við þá hugmynd að sterka kerfið sem var, sé sterka kerfið sem verður, svo og þegar Valdhyggja (Authoritiarianism) blandast inn, og allar eiturtennurnar þrjár mæla formælingar (Daníelsbók) sínar, að fræðingar eða málpípur Hugveitna og Akademíu, útskýra eingöngu sannleika en engar hugvillur og rökleysur.
Eða þannig.
Þegar t.d. hegðun Evrópskra og Bandarískra stjórnmálamanna, síðan 1991 er rýnd, er áberandi að þetta fólk trúir á efnislegan veruleika þeirra kerfa, ríkja, alþjóðastofnana (UN,SÞ kerfið), þverþjóðlegra fyrirtækja (Multinationals), en sjá ekki hvaða kraftlægni (Dynamicity) glæðir þau innsæi og fóðrar kraft þeirra á svo gott sem hverri mínútu tilverunnar, daginn inn og daginn út, árið um kring.
Eitt af því sem fylgir Efnishyggjunni, er Bókstafstrú (Fundamentalism), fyrirbæri sem oft er í áróðursvélum tengt við kreddur (Dogma) trúarbragða og sértrúarsafnaða, en á jafn vel við költ meginstraumsins ef ekki betur.
Vísindin eins og þau birtast í Akademíu og Wikipedia eru Vegurinn, Sannleikurinn og Ránglætið, eða þannig. Það sem Vísindamaðurinn hefur sagt. Það sem Ráðherrann hefur undirritað, o.s.frv.
Allt annað eru Antivismi og Samsæraútskýringar (Dulspeki, Mysticism) og enginn man að Samsæraútskýring og Samsæragreining eru ekki hið sama, og að hið síðara hefur lögmætisgildi t.d. fyrir réttarfari og í stjórnsýslu, til að fyrirbyggja að eitraðir og illa innrættir einstaklingar og klúbbar laumi sér inn í [stjórn]kerfin og yfirtaki þau!
Í heimsmyndarkerfi eiturtannanna þriggja - Félagshyggju, Efnishyggju og Valdhyggju - er allt bundið saman í yfirborðsmennsku (Skin deep) og sálarduldir (Complex, Hugarblökk), allt prjónað af hugveitum á borð við Eranos* klúbbinn og fleiri skylda samstarfshópa, sem Almúgajón heyrir aldrei neitt um og fáir Elítujónar.
Þegar elíta Vesturlanda hóf afiðnvæðingu sína fyrir um það bil þrem áratugum, trúði hún ekki, og þótti fáránlegt að halda því fram, að styrkur, stærð og góðvildarhyggja (Altruism) Vesturlanda myndi skaðast af. Byggingin er jú þarna, en í dag er hún líkari draugaborg og það fólk sem hreyfist á milli bygginga og í þeim, líkara myndastyttum með liðamót og höfuð fullt af bergmáli, og sálarlíf sligað af steinlími, en heilbrigð menning mannfólks.
Þetta er heimurinn sem sprautaði þig, þetta er heimurinn sem nú er að leika sér með kjarnorkustríð á nálaroddi! Þetta er heimurinn sem í dag hefur gengið lengra í skoðana ofsóknum og heilaþvætti - kryddað allskyns falsvísindum - en nokkur miðalda kardínáli lét sig dreyma um að geta komist upp með.
Og þá kemur að ofsafenginni (Frantic) skattheimtunni, sem réttlætt er með þörf "okkar allra" fyrir Vegakerfi, Raforkukerfi, Hitaveitu, og Sjúkrahúsakerfi.
Engin þessara kerfa hafa fengið viðeigandi viðhald og endurnýjun í meir en fjóra áratugi! Vegakerfið ber ekki umferðina, og væri betur nefnt Holukerfið, Raforkukerfið þolir varla mild vetrarveður og þolir illa það álag sem kröfur samtímans gera, Hitaveitukerfið er örlítið skárra enda þriðjungur þess örlítið yngri, Sjúkrahús- og Heilsugæsla hefur ekki vaxið með fólksfjölda né sjúkdómum, og starfsfólk - bókstaflega, reynsla höf. - allra þrepa líkari svefngenglum og vélrænum manndrónum en fólki sem starfar við eflingu á heilsu sjúklinga.
Einföldun:
Kerfin sem við stærum okkur af, sem byggð voru á þeim tíma þegar enn voru til Íhaldsmenn, rétt eins og húsnæðiskerfin og stéttaröryggis kerfin, eru fjóra til fimm áratugum á eftir samtímanum, viðhaldslaus og skröltandi, en elítan sem átti að hirða um þau, hefur tútnað út eins og Jabba The Hut (Feitríkið); fóðrandi sjálfa sig á allskyns "innviðaþvættingi" sem enginn skilur, enda tvinnað í flóknum textum með löngum orðum sem allir eru hættir að hlusta á.
Svo vitnað sé í einn valdamesta ráðherra "Lýgeldisins" á dögnunum þegar hún sagði að það væru Rússar sem ekki væri hægt að treysta!
... sjálfir skelfist ég Ís-Quislínga, og treysti engum þeirra úr augsýn, ekki síst fyrir að hvorki þeir né þolendur þeirra vita hver Vidkun Quisling var, eða hvernig heitið er tilkomið.
Dáin menning, innfallin siðmenning, rotnandi hræ, eða "Viðurstyggð á helgum reit", svo vitnað sé í félaga Jesú, mannsins sem var drepinn fyrir að neita að ljúga.
* Jóhannes Björn fjallaði vandlega um Bilderberg klúbbinn í bók sinni Falið vald. Margir samsæraútskýrendur hafa fjallað um Bilderberg í gegnum árin, og elítan lét alltaf eins og það væri dulspekikenning, en nú eru Bilderberg fundirnir haldnir svo gott sem fyrir opnum tjöldum. Hitt fjölluðu smalahundar Antivisma og Samsærakenninga aldrei um, því "Stýrða anstaðan vinnur enga heimavinnu, að þeir sem stofnuðu Bilderberg stofnuðu Eranos samhliða, og þannig virkaretta. Þetta er svipað og allt fólkið sem telur sig "andlegt" og veit ekki að Tavistock stofnunin hefur verið einráð um hvaða höfundar eru gefnir út um "andleg efni" í hartnær tvær aldir! Það síðsta sem þú sérð, í költi, er eigið költ.