14.4.2025 kl. 10:45
Erlend stríð koma Íslendingum ekki við
Það er brot á lögum Lýðveldisins, að taka afstöðu með eða móti erlendum átökum eða erlendum stríðs aðiljum. Ef elítan fer ekki að eigin lögum, er hún siðlaus, og þegar borgarar eru sinnulausir um slíkt, eru þeir siðblindir.
Þetta er mælanlegt siðrof (Anomie) og sé ekki brugðist við, verður siðfall þ.e. innfall siðmenningar (Imploded civilization). Hvar erum "við" þá stödd?
Ef við virtum eigin siðmenningu, og arfleifð eigin SIÐr, værum við fyrsta landið sem erlendir aðiljar hugsuðu til, svo hægt væri að hittast, ræða málin og finna friðsamlegar lausnir. Við ættum að vera sá sem leitað væri til, um milliráðgjöf, til að finna sættir.
Við erum ekki þar. Við erum voma eigin sögu og þjóðarvitundar. Hnípin plastþjóð í seldu landi.
Það er sérstakt, að sjálfumglaður sósíalískur Húmanismi sniðgengur ritningarnar sem kenna lausnir við slíku ástandi, og þær sömu vara við sama sniðgengi, með rökstuðningi. Við erum að upplifa afleiðingar þess að taka ekki mark á ritningum eigin [sið]menningar.