9.4.2025 kl. 11:29

Skyndigifting, hraðútför, og aðrar blóðtökur lífvana huga

Það verður sífellt fyndnara og farsakenndara, eftir því sem "Hin lúterska evangelíska kirkja" Ríkisins, auglýsir betur og háværar, og brátt svo glymur í öllu, að hún iðkar Djöfladýrkun og Raungusegðir (Dialectics) af meiri ástríðu en nokkur Ba-alista samkunda hefur nokkru sinni látið sig dreyma um.

 

 

Bráðum verður þetta allt saman app-vætt. Svæpa til vinstri eða hægri eftir já eða nei, "Click confirm" og þið eruð gift, skírð, skilin, eða jarðsett, með undirspili frá gervigreind. Skráð í allsherjar gagnagrunn þverþjóðlegu kerfanna.

Djókið er samt þó, að hugarseldir og sálurúnir vítisfylgjendur hennar, skilja ekki hvað það er sem hér er bent á. Taka má þó fram, aukreitis, að Siðfræði Ríkisins er háð siðfræði þessarar djöflamessu, og sé það ógilt, hefur lagasmiðja ríkisins einungis eitt að sjónarmiði; aftöku menningar þinnar.

Sem vonandi er einhverjum augljóst.

Minni á að Trú, Von og Kærleikur, eru úrelt.

Nú blífar Bæn, Iðrun, Vitnisburður og Fyrirgefning, helst á grúfu í möl, en annars á hnjánum, en hrokastandur er góð byrjun ef hitt er of erfitt.

Ég veit að það skilur þetta [næstum] enginn, en vitnisburður skal framborinn. Englar skilja þetta vel, sérstaklega þeir föllnu sem tældu þig út í hugarsteinlím styttugarðsins.