23.3.2025 kl. 16:31

Af Stórastahræsnislandi - 20250323

Þeir sem blogga oft, lenda stundum í innri bábilju, að þeim líður eins og heimurinn fari á hvolf ef þeir hrista ekki fram sína daglegu færslu fyrir blogg heiminn. Eins og Halldór Kiljan sagði eitt sinn, þegar hann var spurður hvað honum fyndist um Íslenska rithöfunda síns tíma, "það er mikið gefið út af bókum."

 

 

Maður lendir stundum í þessu, þegar maður hefur sett eitthvað saman sem svíður á manni, að mann langar að skrifa meira. Svipað og skemmtilegi maðurinn í partýinu sem gat ekki hætt, því einhver hló að fyrsta brandaranum.

Einu sinni fór maður nokkur í fangelsi því hann hafði þáð tilboð frá 15 ára vændiskonu(m) sem vantaði fyrir dópi. Hann var af alþjóð uppnefndur barnaníðingur. Þá tældi Æskulýðsfulltrúi dreng á sama aldri og vændisstúlkurnar, og alþjóð fannst það í lagi, en hafði áhyggjur af boðleiðum þegar hneykslið komst upp, og fannst sumum meðal elítunnar að áhrifafólk þyrfti að hafa sindir á samviskunni til að komast til áhrifa.

Eitt sinn var maður nokkur stimplaður kynferðisafbrotamaður útaf túlkun á lögregluskýrslu sem gerð var undir áhrifum áfengis, en skömmu síðar fengu þrjár mannverur milda áminningu fyrir sama verknað, því dómari taldi það ekki kynferðislegt athæfi.

Eitt sinn var ráðherra fleygt fyir "leka" og blóri látinn taka skellinn, en það var hægriráðherra, en ekki vinstriráðherra. --hinthint.

Þú færð meira réttlæti í Norður Kóreu en á Stórastasprautulandi, og allar tálmunarmömmur eru saklaus fórnarlömb.

Beðist er afsökunar á öllum misskilninginum.