8.3.2025 kl. 14:23

Elítan og stafrænar kosningar

Nú ætlar allsherjar kommúnisminn að koma á stafrænum kosningum á "Íslandi" og gott og vel. Hvergi er þó rætt hérlendis stórfelld kosningasvik víða um heim þar sem stafrænar kosningar eru framdar. Eins er hvergi rætt að stafrænar kosningar gera þingmenn óþarfa.

Ef hægt er að kjósa hvenær sem er og hvar sem er með snjall-símanum eða Debet kortinu (sem er hugmynd Ástþórs), geta borgarar kosið beint um öll lög Ríkisins, og hvenær sem er kynnt sér téð lög á samráðsgáttum.

Þetta er ekki rætt og ekkert heilabú pælir í þessu, því það er enginn hugur lengur. Manstu þegar við tíunduðum í hitteðfyrra öll þau stafrænu kerfi sem eru byggð eftir lokuðum algrímum og án nokkurra staðla?

Hefurðu séð einhvern annan ræða það einhvers staðar, hvernig séu algrímin og eru þau vildarlindir (Open source) og hverjir væru staðlarnir eða dæmi á borð við þegar Landlæknir dældi tugum milljóna í þróun á kerfum sem vinir hennar þróuðu og engin gæða rýni var framin á og nú stjórnar öllu "sjúkdómakerfinu?"

Ó, það er nottla fáránlegt að spyrja, hvaða staðlar eru á bak við algrímin - sem uppnefnd eru gervigreind - sem nú eiga að stjórna öllu okkar lífi. Manstu; sá sem trúir í blindni á vísindin og ríkið, er eini öfgamaðurinn, og hann er öðrum lífshættulegur.

--Dáin menning, Innfallin siðmenning.

Velkominn til Helvítis.

Vittu til, næstu misserin mun enginn ræða þessi mál, neins staðar.

Við erum búin að vera. FLÝÐU