29.10.2022 kl. 08:17

Hvað eru jaðarkenningar

Allar umræður svokallaðs Hægri og Vinstri, eru Sósíalistar að sviðsetja bitbein um hluti sem vestræn menning afgreiddi fyrir meir en tveim kynslóðum, eftir tveggja alda átök. Það merkilega er að þessi bellibrögð sósíalista virka og slá ryki í augu fólks.

Rétt eins og með jaðar- og samsæriskenningar, hvernig elítunni hefur heppnast að fá fólk til að líta slíkt sem trúvillu og djöfladýrkun og geðveilur, þegar einmitt áróður elítunnar gegn samsæriskenningum sýnir hversu margar þeirra hitta í mark.

Því allar samsæriskenningar snúast að mestu um að rangmenni og leynifélög á borð við Davos og Frímúra hafi smeygt sér inn í öryggis- og stjórnkerfi okkar og rangsnúið (sem er glæpur). Eyddu tilfinningu fólks fyrir glæpum, breyttu ábendingum á þá yfir í Húmaníska villutrú (Humanist Heresy) og rangmennin sigra.

Eyddu tilfinningu fólks og innsæi á hvernig allar styrjaldir sögunnar - ásamt þjóðarmorðum Sósíalismans síðustu hundrað ár - snúast um baráttuna gegn djöfullegum rangmennum sem yfirtaka kerfin okkar og beita svo gegn almenningi.

Enginn vill enn ræða lögbrot Sprautólfs, eða að engin ríkisstjórn frá 1944 hefur verið lögleg og að allir forsetar okkar og ráðherrar (og þingmenn) eru sekir um landráð. Þú hefur enga hugarfarslega getu til að höndla slíka greiningu og vinna úr því, og það er ekki tilviljun.