12.1.2025 kl. 12:25
-gildismat-
Árin 2019 og 2020 hófu fáein Nató ríki óformlegar hernaðar aðgerðir í formi viðskiptaþvingana gegn einu Nató ríki. Við ræddum þetta ítarlega á sínum tíma og niðurstaðan er einföld; Nató er búið að vera.
Sumarið 2022 lýsti Nató þing því yfir að það myndi stofna 300 þúsund viðbragðssveit (first responders) í Evrópu, við ræddum það ítarlega þá, að sveitin yrði ekki stofnuð og úskýrðum hvers vegna, og sama niðurstaða, Nató er búið að vera.
Nú á dögunum lýsti kjörinn leiðtogi sterkasta Nató ríkisins því yfir að hann ásælist tvö Nató ríki og annað þeirra er nú að auka hernaðar uppbyggingu í kjölfarið, til að verjast hugsanlegri árás Nató á Nató.
Á sama tíma er Ísland eina ríkið í Nató sem eykur Nató umfangið !!!
Dáin menning, innfallin siðmenning; SIÐROF, ef þú ert þáttakandi í siðrofi, þá skilur þú ekki að siðrof er í gangi.