21.10.2022 kl. 18:36
Algengur misskilningur Gamla sáttmála
Fjölnismenn, sem eru afar og langafar Ís-Quislínga, viðhalda þeirri þjóðarblekkingu að Gamli sáttmáli hafi lagt Þjóðveldið niður. Það hentar. Sáttmálinn hins vegar myndaði sambandsríkja samkomulag Noregs og Íslands um að sameinast um sama þjóðhöfðingja.
Bæði ríkin héldu sjálfstæði sínu þar til afar og langafar Fjölnismanna lögðu það niður, ólöglega, í samsæri með Aðmíráli Danakonungs 1662.
Margir vita þetta og ég hef tekið eftir að síðan 2013, þegar Þjóðveldið var endurvakið með lögmætum hætti, eftir óskum móðurvættar Landvættanna, Fjallkonunnar, hefur þeim fjölgað sem skilja þetta efni.
Endurreist Þjóðveldi rifti Gamla sáttmála fyrir fáeinum árum. Það er ástæða fyrir að þessi milliríkjasamningur ber oftar á góma upp á síðkastið.
- nyttland.is
- https://biggilofts.blog.is/blog/biggilofts/entry/2283500/
- https://bjarnijonsson.blog.is/blog/bjarnijonsson/entry/2283238/
Þú átt eftir að sjá tugþúsundir Endurreistra Þjóðvelda (National Republic Resurrected) út um allan heim á næstu árum og áratugum.
Lögmætisvitundin er vættur, það hefur verið afmarkað og útskýrt með verkfærum heimspekinnar (ekki þeirrar Húmanísku). Það er sjötti fornvætturinn á eftir Urði, Verðandi, Skuld, Forsjón og Cailleach.
Höfum rætt-etta.