3.10.2024 kl. 23:42
Sú þriðja er hafin, það er ljóst, og "Lýðveldið 44" er þáttakandi
Utanríkisráðherra Líbanons hefur sagt frá að Netanyahu og Nasrallah voru báðir - munnlega - búnir að samþykkja vopnahlé í Líbanon, og velta má því fyrir sér hvort Nasrallah hafi einmitt verið í Beirút til að tryggja að því yrði framfylgt ... sem segir meir um Netanyahu og Zionista-vibbann en hér þarf að taka fram - sé þetta rétt, og meirihluti fólks í Miðausturlöndum viti þetta, þá verður núna stríð og því mun ekki ljúka fyrr en Zionistafyrirbærið er fullkomlega afvopnað eða því eytt, því Nasrallah var þess konar leiðtogi - súnní heimurinn t.d. syrgir hann til jafns við shia heiminn, og fólk um allan heim dáðist að honum.
Rétt er að minna Leirmenni og Gáfnaljós íslenskra áróðurs- og heilaþvottavéla á að ef lesandinn þekkir aðeins þá heimsmynd sem borin er á borð hérlendis, á hann ekki að eyða tíma okkar beggja í að lesa Spennulosun - hann veit ekkert og skilur minna.
Annað sem spilar hér inn í, er að eftir drápið á Ismael Haniyeh í Tehran, nú í sumar, hafði Bandaríska sambandsríkið samband eftir diplómatískum leiðum við stjórnvöld í Tehran og lofaði þeim að ef þeir myndu ekki hefna drápsins, myndu Bandaríkin tryggja að komið yrði á vopnahlé á Gaza og haldið aftur af Zíonistafyrirbærinu gagnvart Hezbollah og Líbanon.
Allur diplómatíski heimurinn utanvið Nató múrana, veit þetta í dag. Rétt eins og Pútín og Lavrov hafa rætt opinberlega mánuðum saman; það er tilgangslaust að ræða við Vesturveldin, því það er ekkert að marka neitt sem þau segja.
Við höfum áður bent á að eftir BRICS fundinn í Tatarstan nú í október, verður svikamylla Sameinuðu Þjóðanna - sem Ensk-Ameríska mafían þvingaði fram með tvennum heimsstyrjöldum - úrelt fyrirbæri með öllu, og miðað við hegðun þessarar mafíu sem "Íslenskir Quislíngar elska að totta tærnar á" er nánast öruggt að þriðja heimsstyrjöldin er hafin, og að "hnattræna suðrið" mun ekki slá af fyrr en "leiðtogum" okkar hefur verið smalað inn í Stríðsglæparéttarhöld.
Stóra spurningin hérlendis er nottla, hversu mörg okkar verða þá steikt á kjarnorkugrillinu, vegna Zionista og Nató drullunnar hérlendis, sem er móðgun við allt sem Íslensk menning hefur staðið fyrir síðan borgarastríð Sturlunga var lokið 1264, en Íslensk þjóðarsál hefur firrt sig blóðugum átökum, allt þar til ÍsQuislíngar rændu ríkinu með amerískri litakosningu sumarið 1944.
Þetta er risastórt - og enn eitt háðið sem sýnir hverskonar óþverrar stjórna "Lýðveldinu 44" hérlendis.
Það er tilgangslaust að minna á, en verður þó að gerast; Ísland á að vera hlutlaust í alþjóðamálum og standa utan við öll hernaðar bandalög og hernaðar átök, og efnahags bandalög. Að Íslenska Lýðveldið 44 ætti þó að vera með áheyrnarþáttöku í BRICS, og SCO* tja, ... það myndi afgreiða erlendu skuldirnar ...
Ennfremur: FLÝÐU! Hratt.
Samtal Nima Alvorshad og Ray McGovern frá í dag - nátengt efni færslunnar.
Hér má ennfremur bæta við eftirfarandi:
Þá vil ég vekja athygli á hvernig lyfjamafían sem framdi mRNA árás á mannkynið fyrir þrem árum, með þáttöku allra að því er virðist, er nú að undirbúa stófellda lyfjatilraun á Japan, sem síðar á að nota á okkur öll hin, eins og rottur í búrum. James Corbett gerði fínt myndskeið um þetta stórfellda mál á dögunum, en Japan logar í mótmælum útaf þessari fólskulegu tilraun til opinberra manndrápa í anda Pol Potts, Maó formanns, Hitlers, Stalíns, Churchill, Ríkisstjórnar Guðna Th. og Bill Gates. Einnig gerði hann fínt myndskeið um hvað SÞ mafían er með á prjónunum. Óþarft er að rekja hversu öflugur rannsakandi James hefur reynst vera í gegnum árin.
- https://rumble.com/v5h5es4-japan-rising.html
- https://rumble.com/v5fnr05-the-uns-death-pact-for-the-globalist-future.html?e9s=src_v1_ucp
MUNDU: Það er bannað að taka mark á Spennulosun, eða óreiðuskoðunum veiks manns, sem eru bein afleiðing af mistökum í skólauppeldinu, þar til hann verður flúinn til alvöru siðmenningar.
Góðar stundir
e.s. ég veit að það eru þrjú tjé í þáttakandi - piss off.
e.s. Mæli með skammt af Shirley Bassey medicine fyrir taugarnar