17.9.2024 kl. 12:37

S-ítt með Gr-ndavík - verklagsreglur elítunnar eru í uppnámi

Skiptu út fyrirsögnum undanfarna þrjá daga og settu í staðinn "dáin menning, innfallin siðmenning" og þú sérð hvað föllnu englarnir og púkarnir eru að láta leikbrúður sínar sýna fram á.

Segðu svo að enginn húmor sér hér í Helvíti.

 

Manstu þegar fólk sem ekki skilur eðlis- og efnafræði* ákvað að eyðileggja allt grunnvatn í nágrenni Hafnarfjarðar og Kópavogs, en neyddust til að "doka við" vegna viðbragða fólks sem þarf kranavatn og hefur ekki efni á elítuvatni úr flöskum?

Gott mál, en veistu hvar þeir eru núna að dæla niður, að vísu tilraunaholur, nokkur hundruð þúsund tonn af eiturmengaðri co2-drullu, steinsnar frá nýlegri ferskvatns borholu?

Einhver að fjalla um það utan Reykjanestáar? --hinthint

Flókið?

Gaurarnir sem sögðu mér frá þessu, bættu við glottandi, "rannsóknir sýna að grunnvatnið jafnar sig á tíu árum." En þeir sögðu einnig frá hversu lengi þessi nauðgun á vatnsæðum Íslenskra jarðlaga hefur verið í undirbúningi.

Múgæsinga og áróðurs [fjöl]miðlar syngja bara hæhó í knérunn.

 

* Já, fólk sem trúir CO2 þvættingnum í tengslum við hnattværar loftlagsbreytingar, skilur hvorki líffræði né eðlis og efnafræði, og viðurkennir það opinberlega. Slíkt kerfi á ekki framtíð fyrir sér, í hnattrænni sögu, og greinilegt er að fólkið sem fyrir þrem árum rústaði siðmenningu "mannkyns" veit heldur ekkert um tímann og söguna: og þau stjórna okkur öllum, með "verklagsreglum."

Sérðu samhengið? Þetta er það sem öll trúarbrögð kenna, að fólk sem missir náð raunsæis, breytist í djöfulmenni, og að það hefur einhverjar forsendur.