14.10.2022 kl. 08:57
Af Kynþvætti, kynskiptingu og kynleiðréttingu
Í Davosríkjunum, bæði í Evrópu og Norður Ameríku, missa foreldrar forræði yfir börnum sínum ef þeir neita að leyfa þeim að skipta um kyn, séu kennarar barnanna, eða félagsráðgjafar, á þeirri skoðun að barnið sé kynbrenglað og þurfi því kynleiðréttingu.
Þessi kynþvottur (Grooming) hruninnar siðmenningar er á leiðinni hingað til lands. Davos Marxistar Transhúmanismans ganga lengra en að genabreyta þér í mannskrímsli, þeir láta kerfið kynbrengla börnin þín, sem er barnagirnd (Pedophilia).
Þessi sturlun er ekki ný, hún er hins vegar að stigmagnast og það að fólk er ónæmt fyrir þessu, er hitamælir sturlaðs ástands allra, elítu og almennings.
Var einhver að segja Dáin menning, Hrunin siðmenning, Merkingarlaus túnga?
Úr einu í annað.
Eins og sumir bentu á í sumar, mun Liz Truss verða fyrir valinu af hálfu Bresku elítunnar til að klára rústun Breska konungsríkisins, sem Boris Johnson hóf. Nú er breska pundið því sem næst hrunið og viti menn; bresku lífeyrissjóðirnir tómir. Eikkað um þetta í lygaramiðlum Íslenska smjórlíkisins, eða ástandið almennt? Við höfum lengi bent á það hér, ég og þú, að dollarinn er hruninn og þar með grunnstoðir Esb og Nató; 60 prósent af dollurum í umferð hafa verið prentaðir síðan Bæden rændi kosnningunum. Nú í vetur eru bæði Þýskaland og Frakkland að dreifa hernum í borgir landanna til að koma í veg fyrir að fólk krefjist raunlýðræðis, les: lýgræðinu verður nú viðhaldið með valdi. Ein grunnstoð dollarans, petródollarinn sem smíðaður var með Sádí Aröbum var að hrynja á síðustu dögum þegar Sádar og Rússar sömdu um að minnka olíuframleiðslu heimsins á sama tíma og vesturlönd eru olíusvelt. Þeir sem lásu Húmanistadulspeki, ritgerð mína frá sumrinu 2020, áttu von á þessu. Weimar ástandið sem nú hefur gripið vesturlönd, var fyrirséð af Ernst Zundel árið 1996, hann var ofsóttur og líf hans eyðilagt, þeir sem rústuðu honum eru nú að bíta úr nálinni.
Duran bræðurnir voru með fína stjórnmálagreiningu á breska ástandinu fyrr í vikunni. Samtal Regis Tremblay og Glenn Diesen fóru á sama tíma vel í hrun petródollarans. Það fjölgar þeim sem skilja bloggið mitt, sem er sorglegt því það setur mig í lífshættu. Þú manst að þetta er bara spennulosun. Ég vil minna á að Dr. David Martin (plandemic 2) hefur útskýrt rækilega síðustu 32 mánuði, og ítarlega, að fjármálakerfi heimsins fraus 2019 og að allt sem gerst hefur síðan þá hefur snúist um að fela hrunið sem er í vændum, hann á soldið stórt Told yOU So þessa dagana. Við höfum rætt þetta, sosum.