17.4.2024 kl. 10:45
Alheimsdauði mann-kyns, blessuð minning
Skaparinn einn getur lífgað sál þína, en þó margir trúi um Guð, sem er bókstafstrú (Fundamentalism) sem aftur er Efnishyggja og yfirborðsmennska, þá eru sárafáir sem trúa á Guð. Þetta mældu englar og fallnir englar - sameiginlega - árin 2020 til 2021, og afleiðing mælingar er Helvíti á jörð. {--Arkívið}
Leiðin út, er virkjun vensla (Relation) við Guð, hvort heldur þú trúir um eða trúir á eða alls engu; Bæn, Iðrun, Fyrirgefning, Vitnisburður. Hefurðu tekið eftir árás heims-dávaldanna á þessi fjögur aðgerða-prinsipp (Actionable Principles)? Gert er grín að fólki sem biður bæna, þér er kennt að egó þitt sé heilagt og þurfi ekki að skammast sín fyrir neitt, öll afþreying og allar fréttir boða hatur og refsingu og hefndir, og ritskoðun á orðum þínum eða orðræðu er bann við vitnisburði.
* Þekkirðu muninn á Catholic og catholic? Annað merkir Hið eina alheimslæga* (The only Universal) og hitt alheimslægt (Universal). Þú býrð í dag við Kaþólskan Marxisma og þú veist ekki hvað það er og hefur ekki vald á þeim orðum sem gera því skil. Þvílík tilviljun.
Þetta er eins og munurinn á arkívi og Arkívinu.
* Þekkirðu muninn á siðblindu og siðleysi (Sociopath, Psychopath), eða muninn á siðfræði og siðferði (Ethics, Morality), Alþýðuveldi og Þjóðveldi (Democracy, Republic[acy])?
* Eða heim[s]ræna, heimsværa. Einhvern daginn þarf ég að birta í grein heimagerða listann minn yfir orð sem fúsklenskan hefur ekki í málvenjum sínum né vitund, en greinin yrði löng.
Þórbergur snýr sér við, nokkrum sinnum á dag, í gröf sinni, undanfarin ár, og beinin orðin vel mulin.
* Við gerðum alþjóðlegum flóttaleiðum frá rangindalögum góð skil í texta og hljóðritun (myndskeiðum) árin 2020 til 2022, og reglulega, og rýndum gildi Alþjóðlegra flóttamannabúða og Öryggisgettóa, lagalega og sagnfræðilega. --Arkívið
* Exodus aðgerð Móse gerðist árið 2448 AM (1313 til 1312 BC) en færslan er rituð 9. nisan 5784 AM, og þannig eru þegar þetta er ritað liðin 3336 ár frá Exodus aðgerðinni, sem við höfum einnig gert ítarleg skil í Arkívinu, en þegar kaþólskir marxistar lögðu niður siðmenningu heimsins árið 2020 AD voru liðin 3332 ár og þegar þeir hófu Eitursprautu helförina voru liðin 3333 ár. Þessar tölur hafa dýpra vægi en nútímafólk getur skilið.