12.2.2024 kl. 22:26

Miðfótabrellan

Vald Elítunnar byggist á þrennu. Aðal stoðin eru tilfinningar; allt sem er framsett snýst um tilfinningar þínar, hver einasta frétt. Menntunin snýst um flækjustig sem þú getur ekki staðfest. Framvinda tilverunnar eru atburðasögur sem spila á téða tilfinninga-vangreind og uppgjafar-flækjustig.

Loks hengirðu sjálfsmynd þína, eins og leirdúkka við þá ímynd sem þú hefur gert þér af þessum þrem stoðum og munt því verja "hina innprentuðu heimsmynd" fram í "rauðan" því hún er einnig sjálfsmynd þín.

Ef þú losar um þetta, þá er tilbúið annað mengi af þessum þrem stoðum, fíngerðara net, sem grípur þig og gerir að Antivista eða Samsæraútskýranda, og sjálfsmynd þín límist upp á nýtt.

Ef þú vilt sjá í gegnum fléttuna hendirðu sjálfsmynd þinni og strokar út tilhneigingu þína til að fá þér nýja.