1.2.2024 kl. 15:46
Að afloknum tjaldmótmælum
Hitti í einhverja karla hér í plássinu í morgun sem voru að tuða um tjaldmótmælin á Austurvelli, hinum helga reit Fjölnismanna. Ég spurði hvort þeir gætu svarað fjórum stuttum spurningum, varðandi mótmælin og ég fékk leyfi til að bera þær fram.
a) Hver fjarmagnaði mótmælin? b) Hver græðir á að við erum að rífast um þetta frekar en öfgaskatta. c) Hvort heldur þú að þetta sé sjálfsprottið eða skipulagt af einhverri sundrungar hugveitu? d) Hvaða mótmæli er ekki talað um s.s. mótmælin gegn Covid valdaráninu eða Bændauppreisninni í Þýskalandi, Frakklandi og Hollandi?
Karlarnir þögðu. Einn þeirra tuldraði "það er nú alltaf sama sagan með trúarbrögðin. " Svo ég skaut inn: Hver er munurinn á guðum trúarbragðanna og stjórnarskrá Ríkisstjórnarinnar?
Aftur þögðu þeir, í smástund.
Síðan ræddum við um eitthvað skemmtilegt eins og bíla og þvíumlíkt. Nema við forðuðumst að ræða aðgerðir Ríkisstjórnarinnar til að fasa út einkabílinn.
Úr einu í annað.
Mokaði mig í gegnum skaflinn út við götuna - svo ég kæmist í búðir - þegar ég var hálfnaður sendi Ríkisstjórnin ruðnings traktor eftir götunni og þegar hann sá mig með skófluna, kláraði hann verkið fyrir mig á augabragði.
Mig grunaði sosum að betra hefði verið að bíða til morguns, þar eð það myndi rigna, en mig langaði til að moka, og vonaði að traktorinn myndi redda mér.
Hitti mann í þorpinu í dag sem er illa við Rússland og Pútín, en hann sagði við mig "líklega kem ég með þér til Síberíu þegar þar að kemur."
Hitti konu sem sagði mér allt um það hversu erfitt það er fyrir aldna móður sína að fá engin svör eftir að hún þurfti að yfirgefa Grindavík og aleigu sína fyrr í vetur. Hún skilur að Innviðirnir flækja málin, þó móðir sín eigi það til að fella tár.
Svona er nú Ríkisstjórnin góð. Hún sýnir manni hvað skiptir máli, með góðu eða illu.
Covid sannaði að læknavísindi samtímans eru skottulækningar og töfralækningar. Loftskattarnir sanna að hinir vísindamennirnir eru regndansarar. Blóðgjafir og Líffæragjafir sanna að yfirvöldum er stýrt af djöfladýrkendum sem drekka blóð og éta fólk. Allt þetta sannar að Myrkar miðaldir voru langtum þroskaðri en nútíminn.
Þessi færsla er samsett úr FB póstum færsluhöfundar frá í morgun.
E.S. Er loksins búinn að landa nothæfu orði fyrir "Strategy" (1 | 2) og mun héðan í frá nota orðið Átakatækni en hingað til hef ég notað Hertækni og Stríðstækni. Fyrir "Tactics" nota ég Valsbrögð og hefur það náð kjölfestu. Tók aðeins tíu ár! Hef undanfarið velt fyrir mér að nota orðið Rönguræða eða Raunguræða fyrir Díalektík, svipað og að fara í skyrtuna á raungunni eða röngunni - sem vekur þá spurningu hvort Úthverfusegð[ir] kæmi einnig til greina.