23.1.2024 kl. 20:58
Tilgátuþvættingur Darwins
Til að skilja Darwin, þarftu að átta þig á því að hann átti ekki við stökkbreytingar (Mutations) á einstaklingum heldur stökkbreytingar á lífverustofnum (Biocultures). Engin slík stökk-breyting hefur nokkru sinni fundist.
Auk þessa hefur engin stökkbreyting á einstakling leitt til breytinga á lífverustofni, þvert á móti deyja þeir flestir út eða fjölga sér ekki. Reyndar má velta fyrir sér hvað sé Tegund, en jafnvel Darwin sjálfur gafst upp á að skilgreina það.
Því næst þarftu að skilja fyrirbærið "slembistökkbreyting" (Random mutation). Engin sönnun er til fyrir slíku fyrirbæri í lífheimi jarðarinnar.
Í þriðja skrefi gerði Darwin ráð fyrir að steingervingar myndu sanna Tilgátu hans sem ranglega er uppnefnd Kenning og ranglega kennd sem vísindastaðreynd. Engir steingervingar hafa nokkru sinni fundist sem sýna með rekjanlegum hætti eina tegund breytast í aðra, hvorki í einni stökkbreytingu, né tugum eða hundruðum stökkbreytiskrefa.
Engin sönnun er til fyrir neinni tegund sem breytist í aðra, eða gefi af sér undirtegundir, frávikstegundir.
Loks hefur verið margsannað með stærðfræðinni - aðferðinni sem Galíleó og Kepler notuðu til að máta Biskupana - a) að hefði lífið orðið til fyrir tilviljun og b) hefðu tegundirnar þróast tilviljanakennt, væri fyrsti einfrumungurinn enn ekki kominn fram - miðað við að sé Alheimurinn 13,7 milljarða ára gamall (sem er heldur ekki sannað né sannanlegt með nútíma verkfræði).
Að endingu; ef lífheildin hefði orðið til og síðan þróast, í samræmi við Darwíniskar hugmyndir, væri allt vaðandi í nýjum stökkbreytingum og nýjum lífverustofnum úti um allt, og engu hægt að treysta hvað það varðar, því það væri náttúrulegt eðli lífheimsins. Ekkert slíkt er til.
Engin vísindasönnun er til fyrir þvættinginum "Þróunarkenning Darwins." Svo hvers vegna er hún kennd?
Því hún leyfir Sósíalistum að taka sér allsherjar vald yfir vitund þinni og lögum samfélags þíns án tillits til Siðfræði (Ethics) og með því að möndla siðferði (Morality) þitt með hvaða áróðri og heilaþvætti sem þeim hentar.
Velkomin til Helvítis.
Mæli með fjórum "vísindamönnum" í þessu samhengi - margir fleiri hafa ráðist á Darwin og mölvað styttuna, en þessir eru aðgengilegir fyrir leikmenn og góður præmer:
Fyrirvari: Ríkisstjórnin er reyndar öllu þessu ósammála og því er það upplýsingaóreiða. Beðist er velvirðíngar á öllum ranghugmyndum, og minnt á að þær eru mistök skólakerfisins en ekki brotavilji hins skoðanaskerta.
Takið eftir slæðunum, og svipnum, á konunum í meðfylgjandi
myndskeiði með Seraphim Bit-Kharibi.
Eingyðistrúin hefur aldrei verið karlaveldi,
fyrsti spámaður hennar var kona, og allt
safnaðarstarf hennar og burðarás er kvenna.
Femínistar og Marxistar eru hugarfarslegt frávik,
sem mun deyja út, í eigin eitri.