13.11.2023 kl. 00:21
Útskýring tveggja rabbína á mismun Zíonisma og Júðisma
Fólk skilur ekki alltaf á muninn á áróðursinnprentun og veruleika, hvernig vörumerking getur markaðssett rangsnúning og lýgi annars vegar og sögulegar staðreyndir hins vegar.
Júðismi eru trúarbrögð, Zíonismi er Þjóðernis-sósíalismi (sama og fasismi). Hversu margir í nútíma okkar álíta sig vera kristna en lesa aldrei ritningarnar? Kristni er ekki þjóðerni, frekar en Júðismi.
Að styðja Zíonisma, er bókstaflega hatur á Júðisma, því Zíonismi er falsjúðismi sem rænir öllum stríðsskaðabótum Þjóðverja fyrir morðæði þýskra nasista í annarri heimsstyrjöldinni.
Júðismi bannar gyðingum stofnun þjóðríkis og kennir að Júðar séu enn í útlegð, og það er ekki túlkun, heldur hreinræktuð biblíurýni. Þá má bæta við að kristnir zíonistar hata sinn eigin Jesú, því þeir setja þjóðríkið Ísrael ofar sínum eigin messíasi.
Júðismi bannar hernað af því tagi sem Zíonistaríkið hefur starfrækt frá fæðingu sinni 1948.
Hræsni er farsótt okkar heims.
Hver sannaði vírusinn? Eikkur? Ef þú fórst í sprautuna hlýturðu að hafa kannað málið? Eða er veröld þín byggð á sandi úr áróðursvél og fóðruð á innprentun?
Að þessu sögðu, þá er enginn á móti Ísraelsríki hér, þjóðríkið er þar sem það er, mannað þeim borgurum sem það er mannað, en glæpir Hitlers 1943 réttlæta ekki glæpi Netanyahu 2023, en Ísraelsríki er ekki gyðingaríki heldur þjóðernissósíalískt Zíonistaríki.
Að fordæma glæpi einhvers, er ekki það sama og að fyrirlíta eða hata viðkomandi, heldur gagnrýni á glæpi hans. Sjálfur er ég mikill aðdáandi Júðisma, svosem allir vita, og þreytist aldrei á að læra af frómum rabbínum dýpri skilning á helgum ritningum, biblíunnar.
https://rumble.com/v3v87lk-judaism-vs-zionism.-rabbi-explains.html
https://www.youtube.com/watch?v=QKRSiqBWqNM
Bók Rabbi Yaakov Shapiro - The Empty Wagon á Amazon: