10.11.2023 kl. 16:51
Uppfyllið jörðina, ef þér getið
Þegar Adam og Eva fengu þau tilmæli að fylla jörðina af fólki, var það vegna þess að það er ekki hægt ... jörðin er þannig sköpuð. Við skulum samt velta fyrir okkur einum snúningi, sem við höfum rætt áður.
Þú hefur tekið einhverja stærðfræði áfanga í skóla, svo væntanlega kanntu einfalda rúmfræði, lengd, sinnum breidd, sinnum hæð. Taktu allt flatarmál hafsins, reiknaðu síðan rúmtak þess vatns sem þarf til að hækka vatnsborðið um 10 sentímetra.
Taktu því næst alla jökla heimsins, en þú getur flett upp áætluðu rúmmáli allra jökla, gættu þess að heimildavinna vel, því misvandaðar mælingar og varpanir (projections) eru til - en heildar rúmmál er ekki vel þekkt og því þarftu hæstu og lægstu ætlan.
Taktu því næst helming þess rúmmáls og berðu saman við rúmmálið sem var reiknað í fyrra dæminu. Taktu fyrst fimmtán prósent af ísrúmmáli, vegna lofbólna sem auka við frosna rýmið.
Ef þú nennir þessu ekki, eða treystir þér ekki til þess - en þetta tekur innan við tuttugu mínútur með leitarvél og töflureikni; þá annaðhvort veistu að loftslags áróðurinn er lýgi, eða trúir honum í blindni.
Næsta atriði, þessu tengt.
Segjum að meðalhiti jarðar aukist þannig að jöklabráðnun eigi sér stað; þá mun hitinn einnig aukast þannig að meiri útgufun verði af hafinu, og því er hæpið hvort það myndi hækka nokkuð. Reyndar mætti búast við veðurfari svipuðu því sem var fyrir daga Nóa, temprað um alla jörð, svo byggja megi gróðursæla garða á Suðurskautinu.
... hvernig var trú þín á veruleikann mótuð?
... eru flekarnir að dragast í sundur?
... Er jörðin að stækka?
... hvers vegna er hugur þinn rammaður inn í eldfast mót?
Þriðja atriði; finndu út hversu stór hluti mannfjölda heimsins býr frá flæðarmáli upp í 100 metra hæð yfir flæðarmáli, og finndu því næst út hversu mikið óbyggilegs lands yrði byggilegt við hlýnun ofar hundrað metra hæðalínu.
Einfaldur samanburður; hversu mikið af Hálendi Íslands yrði búsældarlegt við smávegis hlýnun við sjávarmál? Þú giskaðir rétt, ræktarland á Íslandi myndi tvöfaldast.
Eins og Marxistar IPCC segja - sem allur loftslagsáróðurinn byggist á; við notum tölvulíkön til að spá fyrir um hnattrænt veðurástand, því lífheimur hnattarins er of flókinn og viðamikill - ásamt ófyrirsjáanlegum flækjum - til að gera það með athugunum!
Jamm, allt saman byggt á útdreginni einföldun (Abstract simplification) sem aldrei hefur staðist neinar mælingar.
Að lokum.
Útskýrðu fyrir mér hvers vegna enginn hefur mælt a) stærð plánetunnar í meir en þrjú hundruð ár og að stærðarviðmiðun hennar er enn sú sama og Ptolemeus reiknaði út fyrir allt að tvöþúsund árum? Meikar það sens, eru engin frávik? Getur plánetan ekki stækkað? Geta engin meginlönd risið úr sæ? Hefur slíkt aldrei gerst, eða eru Wikipediavísindin, sem lugu að þér um farsótt, vírus og genasprautur, meðetta á hreinu?
Eins og eikkur sagði; varist að fara að heilsutilmælum manna sem vilja fækka mannkyni, og varist að hafna staðreyndum sem dulspekikenningum án þess að athuga málið, því siðmenning þín er að veði (framtíð barna þinna ef þú færð að eignast þau og ala þau upp).
Hvers vegna vill Elítan að þú trúir að lífið sé tilviljun, að jörðin sé í ómælanlegum útjaðri lítillar vetrarbrautar í alheimi sem varð til fyrir tilviljun - án þess að geta svarað grunn spurningum um eigin sálarástand; sannfærir þig um að líf þitt sé tilgangslaust, að vísindin hafi getað svarað öllum spurningum og að endanlegur veruleiki og skilningur hans sé í höndum fólks sem ritskoðar huga þinn?
... er það lífið?
... skuldarðu loftskatta?
... flokkarðu ruslið þitt?
Tengill í alvöru fræði: