22.10.2023 kl. 00:53

Sér er nú hver sagnfræði sjálfstæðis-sósíalista Stórastalands

Einn helsti þjóðfélagsverkfræðingur Ósjálfstæðismanna, sem bjuggu hér til sósíalíska útópíu og lögðu niður sjávarplássin (og lagt hafa blessun sína yfir öll þjóðarmorð Nató í trássi við hlutleysisákvæði laga "Lýðveldisins"); skilgreindi í dag - með prófessorslegum svip utangátta fræðimanns, að Zíonistar* væru þjóð og að frumbyggjar Palestínu væru það ekki.

Þá veistu það. Þurfti langa efnisgrein í þessa flóknu málsgrein. Hvað veit ég sosum, á maður að svara svona veruleika firringu?

Næst mun hann líklega útskýra fyrir okkur að hugmyndafræðileg kyn séu ríkjandi og náttúrukynin tvö víkjandi. Það væri líklega gáfulegra hjá fræðimanninum en Marxísk* bjögun hans á sagnfræði. Enda lærður af kverúlantinum sem treysti sér til að skilgreina hina vísindalegu aðferð, eða sama snillingi og George Soros sem ásamt Davos klíkunni var að leggja Vesturlönd niður.

Merkilegt nokk; fólkið sem trúir á vísindamennina og les ekki vísindin, veit að til er hin vísindalega aðferð. Og ef marka má sagnfræðina, skil ég nú ástandið á stjórnmálafræði landsins. Fræðingurinn sem seldi okkur að hann væri ekki Marxisti með því að skrifa gagnrýni á kommúnismann, klassísk marxista aðferð.

Fyrst minnst var á leirimeistara* Wikipediavísinda, Karl Popper, það er einnig minnst á hann í ágætu samtali Rabbi Yaakov Shapiro og Harold Channer fyrir fáeinum misserum, en eins og vellesnir vita skrifaði Shapiro eina virtustu fræðibók heimsins um uppruna Zíonismans, 1200 síður með hátt í þrjúþúsund tilvitnunum - The Empty Wagon - og allir áhugamenn um Júðisma hafa líklega tryggt sér eintak.

 

 

The Empty Wagon: þar sem þú færð t.d. að vita mjög fína yfirferð á hvernig aðdáendaklúbbur fasistans Mússólíní - Likud bandalagið - stóð fyrir skrúðgöngum þegar Ítalía sigraði stríð sitt við Eþíópíu 1936.

 

* Af samhengi texta fræðingins að dæma geri ég ráð fyrir að hann eigi við Þjóðernis sósíalista Zíonískrar efnishyggju*, þó hann afriti heiti Júðisma (Judaism) - Gyðinga - á orðafret sitt, sem segir upplýstum hversu vel hann er inni í viðfangsefninu. Sem minnir mig á; hvað er þjóð; en Múhameð einn mesti spámaður Eingyðistrúar segir að það sé fólk sem deilir sömu heimsmynd og sömu merkingarfræði (Logos). Færsluritari hefur ekki rekist á betri skilgreiningu.

* Mundu að Marxismi er þrátunnar-efnishyggja og algjör útdregin veruleikafirring, notuð til að réttlæta valdtöku og rán.

* Ritaði óvart leirimeistari þar sem átti að vera lærimeistari, læt kímni dulvitundar standa óbreytta.

* Efnishyggja er bæði bókstafstrú yfirborðsmennsku og rörsýnar, auk ástar á kapítali annarra.