30.9.2023 kl. 04:29

Súellen Júvíng

Búinn að vera upptekinn að horfa á Dallas undanfarið, og er búinn að fatta hvernig Elítan notaði þessa þætti til að heilaþvo mig með Arketýpum þáttanna þegar ég var unglingur.
 
Engin þessara "persóna" voru persónur, allt saman vandlega kótaðir áhrifahvatar, og sjáðu til; hver einasta kynslóð fær sína seríu.
 
Allir sem t.d. elska "Friends" þættina voru fremstir í röðinni við Betlehemssprautuhúsið þegar Gates keisari lét það boð út ganga að sprauta skyldi alla heimsbyggðina.
 
Sue Ellen, skyldi ég nokkru sinni losna undan sjarma hennar, eða losna við aumingjaskapinn í miðbróðurnum Gary? Já, hugsanlega er allt kverúlantið undanfarin ár, sambland af þessum tveim?
 
Er ekki viss hvort ég hefði fattað þetta ef Hatursgospel Ríkisstjórnarinnar hefði ekki opnað augu mín fyrir rörsýnum mínum á félagslega neikvæðni.
 
Sem minnir mig á annað, því hatur er huglægt mat ef engin fagleg sálfræðigreining liggur að baki. Eins og með nasistalögin frá í febrúar 2021, sem uppnefnd eru farsóttalög; þar eru nákvæmlega engar vísindalegar skilgreiningar, fyrirvarar um neina mælikvarða, né skeytt um sögu Ríkisins þegar kemur að rekjanlegum skaðabótum vegna stungulyfjameðferðar; lög þau eru gospel - eða trúarkredda.
 
Eins og eikkur sagði, sé PCR smit sem ekki sýnir sóttareinkenni,  notað til sóttkvíjar, er sannanlega um smitkví að ræða, sem er ólögmætt varðhald/fangelsi án dóms og laga. Sá sem beitir slíku er sekur um lögbrot og við því lögbroti eru refsiákvæði. Fleiri lögbrot má tiltaka, en ég veit ekki hvort það væri hatur eða ást eða hlutleysi að tilgreina það ennáný.
 
Afsakið, neikvæðnina, eða ríkislastið.
 
 
--Djúpsálarfræðin