26.9.2023 kl. 08:44
Vá - eða hvað með Banderistuna í ríkisstjórn Kanada?
Viðhengd frétt minnist ekkert á þegar Christia Freeland fagnaði nasistafánum og öðrum slíkum táknum á almannafæri í fyrra, aðeins örfáum vikum eftir að hún afnam borgararéttindi samlanda sinna í Kanada, og lokaði bankareikningum þeirra sem hún er ósammála.
Ekki er minnst á að afi hennar barðist fyrir Þjóðverja* í síðari heimsstyrjöld (sem MBL uppnefnir "seinna stríð" sem ég veit ekki hvað er). Þá fer fréttin ekki rétt með hlutfall þeirra í Úkraínu sem annars vegar börðust í liði með Þjóðverjum og hins vegar í liði með Sovétríkjum, og ekki er minnst einu orði á Stepan Bandera og hvað hugmyndafræði hans er, eða að sú afbakaða nasistaútgáfa er aðal hugmyndafræði ríkisstjórna Úkraínu og Kanada þessa dagana.
Nei, upplýsingar skipta engu máli. Ef þú rýnir hvernig skólakerfi - og fjölmiðlar - ala börn upp í dag, þá er í raun furða að fólk í kringum okkur tali yfirleitt tugumál og kunni einhverja framkomu, því hugur fólks er bókstaflega strokaður út. Því meir sem ég tala við ömmur og afa í nágrenninu, og inni eftir hvernig barnabörn þeirra eru alin upp eða haga sér, kemst ég að þessari niðurstöðu.
Minnir að einhver hafi sagt; fyrst deyr menningin, síðan innfellur siðmenningin, og þá upphefst glundroði rofinnar rjúkandi tungu.
Að lokum minni ég á að allar öfgaskoðanir eru aðeins tákn þess að ég er hatursfullur hægri-öfgi - sem skólakerfinu mistókst að leiðrétta vegna vangerðar minnar en ekki algríma þess - og ræð ég ekki við þessa röskun; að almáttug og vitur ríkisstjórnin banni slík andleg veikindi, verður vonandi til blessunar og heilunar. Allar færslur skal lesa sem ákall um hjálp, og almenna spennulosun í veikindum. Vonandi brýt ég ekki hatursguðspjallið, en verði svo, minni ég á fyrirvara þennan.
Staðreyndin er sú, að Elítur vesturlanda síðan 1940 til dagsins í dag eru sekar um þúsundfalt stærri, umfangsmeiri, og grimmari glæpi en einhverjar áttatíu ára gamlar draugasögur af átökum í Evrópu fyrir tveim kynslóðum. Ekkert þeirra skrípa sem enn notar Hitler og Nasista til að stimpla annað fólk, veit hvað sú hugmyndafræði er, eða hvernig hún er útfærð í nýjum skrúðum á vesturlöndum allar götur síðan í maí 1945. Okkar eigin lygara- og hræsnismenning, er dáin og átti skilið að deyja, enda skirrðist hún við að bekenna vitjunartíma sinn. Við erum iðrunarlaust pakk, ýmist haldið illum öndum eða samlagað, og það er hin náttúrulega framrás að við verðum strokuð út, að við erum að stroka sjálf okkur út, er fyndið, því andi menningar okkar er farinn og bygging siðmenningar okkar er tóm og því innfallin. Að jafnvel í miðju bálinu heldur fólk að ekkert sé að frétta af eigin ástandi, er sönnun framangreindra öfgafullu hatursfullu rangskoðana.
... og viti menn, ÍsQuislíngar ætla sér að setja lög um hvað má segja og hvað ekki varðandi téð átök fyrir áttatíu árum, bíddu, það eru að koma lög um hvað má segja og hvað ekki um þeirra eigin þjóðarmorð! Vá!
Góðar stundir
* Enginn á vesturlöndum gerir enn greinarmun á Nasistum og Þjóðverjum þegar minnst er á síðari heimsstyrjöldina - eða aðra heimsstyrjöld. Enda nákvæmni og siðferði eitthvað sem skiptir engu máli lengur.
---
Langar að endurbirta hér, færslu sem ég reit á FB í gærkv.
"
Að lokum; ég sé afleiðingar af sprautunum, bókstaflega útumallt, og í fréttum einnig, en ég sé hvergi neina umræðu neinsstaðar um það. Jú, stöku Antivista gúlli reynir, en gímaldið (Abyss) hefur gleypt glæpinn. Það mun að lokum gleypa þig. Vonandi sleppa þeir sem iðrast. Það er vonin sem boðuð var fyrir 20 öldum, rúmum, reyndar mun fyrr. Tímalína menningar okkar, er stutt, fyrir þeim sem spanna sín æviskeið í hundruðum alda. Sál þín gerir það, en hún er eitruð og þarf hreinsun og þú skilur það ekki, bæði af eigin þverúðgi, einnig vegna þess hvernig efnisfarvegir okkar eru staðfærðir (Manifest) og kótaðir (Encoded).
Hindúar tala stundum um karmískt endurfæðingar hjól, eða svinghjól, sem spanni siðmenningu. Sumir segja þá telja slíkt í 42 þúsund árum, ég held að þeir telji það í 4200 árum; og það stemmir. Síðasta endurfæðingarhjól - frá Nirvanískri heimssýn - var árið 2105 f.Kr (1656 AM), eða fyrir 4128 árum - sem stemmir við ýmsa útreikninga Bibbunnar. Við höfum áður fjallað um tíma heiðingjanna sem líklega líkur árið 2097, eða tveim árum síðar ... bwahahahaha.
Sýnir ljósenglanna sjö, sem gáfu þér tuttugogeina heimssmynd, eru allar samóma (Resonate). Skondið að upplýsingar um það voru fyrir augum okkar allra síðan 98 AD og enginn sá það fyrr en sýn var send til að ljúka því upp 2010 AD. Já, það er skondið, því þegar þú skilur þá upplúkningu, opnast þér kort yfir völundarhús (Labyrinth) sjöþúsund spegla.
Veröldin er ekki það sem bókstafstrú Wikipedia segir þér að hún sé, labbakútur.
Afsakið, aftur, veiklundaðar rangskoðanir.
Manstu þegar Íslenskir vitsmunaþingmenn (Intelligentsia congress) brutu stjórnarskrá Íslenska Lýðveldisins og buðu Úkraínskum nasista/banderista leiðtoga að halda þrusuræðu í Ríkisþinginu við Austurvöll sem uppnefnir sig Alþingi? Nei, það þótti sko í góðu lagi.
Hræsnarar og úrþvætti!
Lög á "Íslandi" eru í dag þýðingar á tilmælum frá Davos og reglugerðum í Brussel. Þýðingaralgrím Ríkisins hafa gert þingmenn "okkar" óþarfa, enda engin siðfræði lengur til í landinu.
Í glundroða rofinnar rjúkandi tungu, er engin merking lengur á neinu ...
Ó mig auman, þvílíkt hatur, eða var það fyrirlitning, eða kannski veikindi, ó mig auman!
... skrepp í bankann, til öryggis.