20.9.2023 kl. 23:49
Þú lemur þræl, til gamans, en ekki af nauðsyn
Engin þjóð í heiminum er eins heilaþvegin og hlýðin og flatneskjuleg, eins og Sprautlendingar (áður Íslendingar). Engin önnur þjóð borgar eins mikið fyrir "afsalið að íbúðum sínum" og engin önnur þjóð borgar eins mikið í skatta, og engin önnur þjóð lætur brjóta eins mikið á stjórnarskrá sinni. Hvergi í heiminum ríkir eins mikil skammsýni, þröngsýni, eða almenn rörsýn.
Engin stjórnarandstaða er á sprautulandi og engar umræður um eitt eða neitt. Þess vegna er ritskoðun nauðsynleg á Sprautulandi, vegna þess að það er hægt að koma henni á, ekki vegna þess að þörf sé á.
Allt framangreint er mælanlegt.
Þú flýrð það sem Jesú nefndi viðurstyggð á helgum reit, þ.e. innfallna (maðkétna) siðmenningu.
Ef þú skilur þetta ekki, þá ert þú leirmenni eða bergmálsdúfa eða hvorutveggja; þ.e. fullkomlega vitundarskrúbbaður. Hugtakið heilaþveginn, á ekki við neinn Sprautlending, ekki lengur.
Flýðu. Lifðu.
Það verður fljótlega of seint.
Aðvörun; Framangreint gæti brotið hatursegðalögin, og mundu að ég er andlega veikur maður og hef ekki fulla stjórn á hvenær ég rita löglegan eða ólöglegan texta. Bannað er að taka mark á slíkum textum. Þú átt að elska Elítuna, því hún elskar þig og hefur vit fyrir þér; ef þér finnst hún ranglát, þá er það þín sök að skilja hana ekki betur, nema þú h afir veikindagreiningu.
Þú manst að Góði dátinn Svejk hafði slíkan pappír.
E.S. Tókstu eftir að Ógnarstjórnin er núna að sameina alla háskólana og koma þeim undir öflugri miðstjórn í anda Norður-Kóreu? Snilld! Til hvers að kæfa stjarfa huga? Það er eins og að herða forskrúfaða ró.