1.9.2023 kl. 23:19

Velkomin til kommaheljar

Maður nokkur skrapp bæjarleið að kaupa sér bíl, en þar sem hann fékk ekki pössun fyrir hundinn, fór hundurinn með. Á heimleiðinni sat hundurinn í farþegasæti nýja bílsins, því ekki var búið að setja hundabúrið í skottið.
 
Skyndilega stöðvar bíllinn, og neitar að fara í gang, maðurinn fletti upp í handbókinni: Viti menn, gervigreindin hafði drepið á bílnum og gert startarann óvirkan, því "farþeginn" var ekki í öryggisbelti.