29.8.2023 kl. 00:27

Kvöldkyrrð - 20230829

Fékk áhuga á, í hitteðfyrra, að leita uppi góð "cover" af ýmsum lögum, því ég þarf oft lög fyrir spennulosunarbloggið. Eins og allir vita koma fleiri á bloggið fyrir saunglögin en ritmálið, svo þetta er vandaverk.

 

Meðfylgjandi lag byrjar á auglýsingu, en þeim fyrirgefst, því þeir náessu.

 

Það er ekki alltaf auðvelt að finna "cover" því þó fólk geti gert soleis - sem er verðug viðleitni - þá eru flest þeirra drasl, og þau sem eru ekki drasl byrja flest á "monetization" auglýsingum og eru því dæmd úr leik. Lék mér að því áðan að fikta smávegis og leitaði uppi "cover" af "Wish you were here" með Pink Floyd og það var sko ekki auðvelt!

Eftir talsverða leit fann ég eitt sem er gott, og meðan ég hlustaði á það fattaði ég hvers vegna ég hætti að deita á sínum tíma. Þegar þú hlustar á "wish you were here" - og spilunin er góð - hverja fyrrverandi leitar hugurinn til? Ef fleiri en ein koma til greina, eða alls engin, þá ertu í fokkings djúpum, eða þannig. Svo sat ég og hlustaði og hugsaði, ó mig auman, svo staðnæmdist hugurinn.

Ég sakna hundanna minna sem eru dánir, og að fara með þeim á leitarhunda æfingar í góðum félagsskap. Mjög mikið. {hundasport.is}

En sá tími kemur aldrei aftur og nú er síðasti hundurinn minn að undirbúa lokaferðina sína yfir móðuna miklu, en heilsan hennar er lögð af stað niður hlíðina og hver dagur sem við höfum saman er guðsgjöf.

Hver veit hvað maður gerir í vetur, þegar ég verð orðinn einn. Í apríl brann bíll sem ég átti á ferð í Reykjavík, og í ágúst hrundi díselvélin í gamla jeppanum mínum; báðir bílarnir í topp viðhaldi. Nú er ég bíllaus, heimilislaus og brátt hundlaus. Flý ég til Rússlands? Verð ég hér áfram?

Hvað svosem verður; munum við fókusa á það eitt að efla hagsmuni Skaparans, eftir því sem honum þóknast. Það hefur verið þannig síðan sumarið 2010, annaðhvort fyllir vindur hans seglin, eða hann leyfir englum Satans að halda manni í gíslingu. Tilveran hefur verið erfið síðustu fimmtán árin, en í staðinn hlaust sú blessun að þjóna.

Hvort gagn er að, eða ekki, hver veit.

Kannski skiptir það engu máli, því hvað er ytri veruleiki annað en endurspeglun þess versta í hinum innri, og allur ferillinn eins konar skilvinda, undanrennan fer í gemlingana og rjóminn í köttinn, en þjónustan (vinnan á sveifinni) er ánægjan og lífsfyllingin.

Tja.

Maður á nottla ekki að skrifa svona persónulega spennulosun, en ef maður gerir það ekki, þá er engin spennulosun ...