8.8.2023 kl. 11:14

Sjóðheitar hitatölur

Hér á svæðinu var gras farið að brenna, rétt, júlí mánuður var fullkominn sumarmánuður. Júní var hins vegar ein löng rigningardemba og maí var verri en september, líkari október; og trjágróður sem byrjaður var að bruma í maí skaddaðist mjög og hóf fyrst að jafna sig í hita-blessun vætta í júlí. {sjá tengda frétt}

Bíddu; miðað við slagorða fyrirsögnina hefði mátt búast við einhverju merkilegra en "0,33 stig­um heit­ari en júlí­mánuður árs­ins 2019" eða "var 0,72 stig­um heit­ari en meðal­hit­inn í júlí árin 1991 til 2020."

Eigum við að ræða staðsetningu mæla og stöðlun mælitækja og nándaráhrif? Eða tímasetningafrávik? Hefurðu lesið fræðigreinar um slík mál? "Frá upphafi mælinga" er áróður.

Var Tímasetningafrávik langt orð? Úbbs, hefur glíman við kommúnista smitað*?

Bendi þér til gamans á veðurrannsóknir á Suðurlandi í tengslum við áform sumra að byggja þar nýjan alþjóðaflugvöll ef Elítumafían sem á Leifsstöð leyfir samkeppni við sig. Já, mjög áhugaverð rannsókn sem sýnir hvernig hægt er að gjörbreyta meðalhita með staðsetningum hitamæla.

Manstu verkfræðinginn sem sótti tölfræði inn á Þjóðskjalasafnið og bar saman við kommúnistatölur Veðurstofunnar og sannaði að veðurstofan hafði slípað tölurnar til að þær pössuðu við áróður IPCC og Davos? Hann missti FB prófílinn sinn!

Flýðu áður en gámagúlagið kemur.

Fyrir þá sem eru að spá í flótta til "þú veist hvert:"

Þar í landi vantar 60 þúsund meiraprófsbílstjóra (fyrir þá sem hafa gamla ökuskírteinið frá því áður en reglugerðir Brussel og Davos kommúnista bjuggu til 19 ökupróf). Þar í landi er aðeins 13 prósent tekjuskattur og þú getur fengið frítt land viljir þú hafa smávegis sjálfsþurftabúskap; hér geta bændur varla rekið niður girðingarstaur án þess að brjóta reglugerð.

Ef þú heldur að ástandið reddist, og að þjóðarmorðs mafían sé hætt hernaði sínum gegn borgurum vesturlanda, ertu snillíngur.

 

* Vantar hugtak fyrir "rubs off."