21.7.2023 kl. 20:42
Heimsstyrjöld og heimsveldastyrjöld
Sjö ára stríðið milli 1750 og 1770 (1756-1763) var háð í því sem næst öllum heimsálfum og tóku þátt í því öll öflugustu ríki þess tíma. Hefurðu heyrt um Friðrik mikla af Prússlandi. Ég uppnefni hann oft Karl fimmta því ég þjáist af nafna og dagsetninga óreiðu, sem er hugvitsveiki.
Friðrik skíttapaði fyrir Rússum og eftir þann ósigur hóf Pólland að hverfa inn í Rússneska keisaraveldið og Prússneska konungsríkið í sneiðum þar til um aldamótin 1700/1800 að "hertogadæmið Varsjá" hvarf með öllu.
Þetta var heimsveldastyrjöld, háð í köflum, með ýmsum hléum, og að einhverju leyti hér og þar í heiminum. Árin 1800 til 1816 var hið sama uppi á tengingunum þegar allt að sex samvinnubandalög (Coalition) voru gerð af hálfu Breta og Austurríkismanna og loks Prússa og Rússa til að vinna bug á hersveitum og herkænsku* (Strategy) Napóleóns fyrsta.
Önnur heimsstyrjöldin svonefnda og síðari heimsstyrjöldin, voru í raun sú þriðja, því árin 1914 til 1945 má í raun ræða að um eina samfellda heimsstyrjöld hafi verið að ræða. Sama mælieining og hér er skilgreind, á við þá styrjöld sem hófst 26. febrúar 2022.
Flýðu, Lifðu.
Þessi styrjöld sem nú er hafin, sem rökrétt - og óraunsætt - framhald af covid helförinni; er gerræði. Mann-kynið er sturlað.
Útskýrin í boði handa leirmennum og bergmálsdúfum.
Fyrir þá sem allt vita en ekkert skilja; sigurvegari Sjö ára stríðsins voru Rússar; Evrópa lá opin fyrir þeim. Sigurvegari Napóleóns styrjaldanna voru Rússar; þeir hernámu París. Sigurvegari annarrar heimsstyrjaldarinnar voru Rússar, þeir voru komnir til Berlinar og voru í mið-þýskalandi með 12 herdeildir fyrir hverja eina frá Bretum/USA.
Rússar hafa sigrað þrennar heimsstyrjaldir og ávallt farið friðsamlega heim aftur.
Óttó Von Bismarck, stálkanslari, varaði sjálfsþóttafólk vestur-evrópu ítrekað við; ef þú tekur ekki mark á rauðum línum Rússa, fer illa fyrir yður.
Twin Toers og Pruitt Igoe; sami arkítektinn, sömu örlög; táknrænt.
https://www.youtube.com/results?search_query=minoru+yamasaki+twin+towers+
* Ég nota ýmist herkænsku eða hertækni/stríðstækni fyrir Strategy, eftir málsetningu og atvikum. Strategy er ekki enn þýtt á Íslensku og erfitt að finna "bestun" í málnotkun, en mitt mat er að stríðstækni sé besta lendingin og stríðskænska séu jafnhæft eftir atvikum.