30.6.2023 kl. 16:00
Hver er Kelly Clarkson?
Áríðandi tilkynning frá Elítunni: Sósíslismi er sönnun þess að Jesú kom aftur, og að félagslegur jöfnuður ríkisins, og kynskiptingamenning, er hin postullega útfærsla. Allt annað er hatursorðræða og ber að laga með gúlagvistun.
--Elítan og Mannréttindadeild Sameinuðu Þjóðanna
Hvað eru margar ríkisstofnanir á Íslandi? Ég spyr stundum upplýsta borgara þessarar spurningar, þegar þeir tuða um hitt og þetta í stjórnmálum og "menningu" landsins, en þeir nefna aldrei meir en tvær.
Síðast þegar ég athugaði (2017 AD), voru þær rúmlega 140, en þaæ kæmi mér ekki á óvart ef taln í dag væri nær 200 eða jafnvel hærri.
Stundum spyr ég hinn upplýsta borgara, hversu mikið hækkaði opinber innheimta ríkisins í fyrra (194 milljarðar í ár) og hversu mikið hefur opinberu starfsfólki (og verktökum) fjölgað síðan Ógnarstjórn Katrínar, Bjarna ig Sigurðar breytti landinu í Útópíu (rúmlega 9 þúsund) en borgarinn getur aldrei svarað þessum spurningum, hvað þá heldur hlutfall ríkis, lífeyrissjóða og einkaframtaks í efnahagslífi "þjóðarinnar."
Sömu borgarar hafa ávallt getað svarað eftirfarandi: Hverjar eru helstu sjónvarpsseríurnar þetta árið?
Enginn þeirra sem tilbiðja eða trúa á covid sprautur hins opinbera eða PCR smit-verkfræðina, veit hver fann upp mRNA eða PCR. Öll trúa þau á vísindin, en vita ekkert um þau.
Uppáhalds spurningin: Hversu margir ráðherrar í núverandi ríkisstjórn áttu enga pólitíska grasrótarfortíð áður en Elítan gerði þau að valdamesta fólki landsins?
Eins og ljóst má vera, skipta góðar spurningar og svör við þeim, umtalsverðu máli.
Loka spurning: Hversu umfangsmikil er óstöðvandi mótmæla alda lýðræðislegrar Evrópu undanfarna 36 mánuði og hversu mikil umfjöllun er um þá stöðu? Hvar finnurðu upplýsingar um þessa mótmæla öldu sem er sú mesta í allri þekktri mannkyns-sögu?
Já, lýðræðisleg mótmæli almennra borgara við siðrofi lýðræðislegra vesturlanda, og þöggun á því, er margfalt meiri en í sögu verstu harðstjóra þekktrar sögu.
Stór spurning eþaggi?