21.6.2023 kl. 12:21
Frákastsfærslan - 20230621
Ég skrifaði svo mikið í gær, spennulosunin var svo djúp og umfangsmikil, að þessi var skrifuð meira af fingrunum en ætlun. Eins konar spennufall. Í dag eru sólstöður á sumri, og á morgun verður Íslensk þjóð 1097 ára gömul.
Þversumman af 1097 er 15 og þversumman af 15 eru 6, sem táknar mannlegan ófullkomleika. Ekki búast við neinu raunsæi þetta árið, en dýpri rangsnúningi, meiri sundrungu, og flóknara merkingarleysi.
Góðar stundir.
E.S. Samtvinnaða Leiðangurs Sveitin er árásar bandalag, bara svo þú vitir að heræfingarnar sem nú eru í gangi hérlendis, afmáir að Ísland sé herlaus þjóð, og olíu-trukkarnir sem Lýðveldið "þitt" gaf Úkraínska hernum nú í vor gerði Ísland að beinum þátttakanda í stríði við Rússa - í þínu nafni.
Farinn í bloggfrí - vil ekki lenda strax í skoðanafangelsi - gámagúlagi - það kemur að því, en góðir hlutir gerast hægt.
Sem minnir á annað; eftir sjö ár verða dísel og bensínbílar ólöglegir á Íslandi. Nema í litlu Íslendinganýlendunni við Baikalvötnin, þar muntu enn geta jeppast, og metist um dekkjastærðir, og einnig verið karlmaður ef þú vilt.