1.3.2023 kl. 01:59
Öll fasteignagjöld og allir skattar af eignum, eru siðlaust rán
Ríkissmiðja sem beitir rányrkju, er rányrkjuríki fyrir hagsmuni fárra en ekki ríki fyrir hagsmuni allra sem undir henni búa eða að koma. Félagshyggjuríkin eru óskammfeilin rányrkja og menntakerfið hefur sneitt úr vitund þinni getunni til að skilja það eða bregðast við.
Vinsælasti áróður sósíalistanna sem hafa yfirtekið ríkið og breytt því í mafíu; er að benda á kaptíalíska spillingu sem oftast er ekki til eða eru smámunir í samanburði við þeirra eigin.
Þess vegna eru 82 prósent þjóðarinnar nú genabreytt gates-dýr; já, því Gates mafían á núna erfðabreyttu genin þín. Þú mátt kommenta, en þú ert samt eign.
Þú mátt jafnvel kalla það Lýðræði ef þú vilt, en rányrkjuríki, sem stýrt er af landráðafólki, er ekki lýðveldi heldur lýgveldi. Siðleysi elítunnar nærist á siðblindu almennings.
Almenningur sem sættir sig við verðtryggingu lána, og greiða því fimmfalt til tuttugufalt verð eigna sinna, og síðan skatt af téðum eignum, er siðblint þrælahyski. Elíta sem hagar sér eins og verðbólga - sem rænir almenning aleigunni - hafi komið sér að óvörum, er siðlaus.
Manstu þegar Elítan kenndi okkur í skóla að seðlaprentun væri ástæðan fyrir verðbólgu og við trúðum því öll, allsstaðar í heimi hér? Þetta er rangt, það eru reglugerðar álögur og önnur opinber gjöld sem valda verðbólgu og viðhalda henni.
Fleiri skilja þetta, og geta útskýrt betur, en það birtist ekki í Elítumiðlum.
Manstu þegar kommúnistinn í Seðlabankanum, sem var gerandi í að koma á hruninu 2008 sem rændi 20 prósent eigna landsmanna, lýsti því yfir í upphafi Covid helfararinnar, að kostnaðurinn af aðgerðunum skipti engu máli því hægt væri að redda því með seðlaprentun.
Þeir sem borga brúsann brettu óðir upp handlegginn og gerðust tilraunadýr í genaglundri, settu nærfatnað á trýnið, og skruppu úr gasklefahöllinni í hollum til smáþorpsins Tene, þegjandi og hlýðnir eins og höfuðlaust fiðurfé.
Antivistar segja stundum að almenningur sé heilaþveginn og þurfi að vakna. Antivistar eru jafn siðblindir og almenningur. Þetta fólk er allt saman - almenningur og antivistar - vakandi, en er það heilaþvegið? Já, en ekki án siðblinds samþykkis.
Þess vegna er menning beggja dáin og siðað menningarríki Elítunnar innfallið. Þú hefur ekki réttlæti og þú færð ekki réttlæti og stríðið í Úkró mun ekki hætta fyrr en öll vesturlönd hafa lagst að fótum bölvættar þess sem vakinn var þegar börnunum var blóðfórnað.
Þú mátt kommenta. Það breytir ekki staðreyndum.