26.2.2023 kl. 23:24

Hatur Elítunnar á vændiskonum þekkir engin takmörk

Berðu svona spuna-áróður, eins og í tengdri frétt, saman við umfjöllun Elítunnar um aðrar atvinnugreinar. Einfalt.

Taktu einnig eftir eigin hugarblökkum sem fyrirmuna þér að vinna úr hvað vændi er og hvað það er ekki. Umorðun; veittu eigin fordómum og hugsanlegri innprentun athygli, ef þú ert fær um það.

Það eina sem mark er takandi á í svona umræðum er eftirfarandi: Hættið ofsóknum yðar og tvískinnungi gegn vændiskonum og veitið þeim sömu mannréttindi og virðingu og öðrum hópum samfélagsins.

Hættið ennfremur að heilaþvo borgara yðar og óstöðvandi hatursfullum rangsnúningi á hverju því málefni sem siðspillt Elítan er ósammála.