2.2.2023 kl. 22:01
Síðasta færslan að sinni - þangað til Ísland verður aftur Lýðræðisríki
Ég biðst fyrirfram afsökunar á eftirfarandi öfgafullu ranghugmynd: Fyrir fáeinum árum, eftir að hafa grúskað í menningu og sögu eins og hún er þekkt og síðan allskyns jaðargreiningum sem og merkingarfræði alls þessa sannfærðist ég um að Ísland hafi verið óbyggt fyrir 1662 - það eru engar sannanir til fyrir að landið hafi verið í byggð fyrir þann tíma, auk þess sem sú menningarsaga sem okkur er kennt eða hægt er að grafa upp, stenst ekki merkingarfræðilegan samanburð við samtímann. Að landið hafi m.ö.o. verið notað sem tilraunaverkefni á vegum Breskra, Hollenskra og Danskra Frímúra (Hansakaupmanna), til að búa til þjóð og gefa henni sögu, eins og leikfang. Íslendingar samtímans eru því afkomendur fátæklinga úr Evrópskum borgum sem voru Shanghæjaðir hingað með valdi og gefin platsaga og samsett tungumál: sem stenst merkingarfræðilega. Þessi tilraun hafi síðan kennt þeim hvað virkar og hvað ekki í sambærilegri þjóðasmiði víða um heim. T.d. eru Líberia og Ísrael skotheld dæmi, einnig Bandaríkin. Eftir því sem árin hafa liðið, hef ég sannfærst um að þetta sé rétt greining. Ég veit að þetta eru hatursfullar hægri-öfgar, og vonandi læknar Ríkisstjórnin mig af þessum ranghugmyndum einn daginn. En þangað til verður þetta niðurstaðan.
Íslendingar eru ekki þjóð, þeir eru tilraunarottur.
Ó, úbbs, og þeir staðfestu það í fyrra.