4.1.2023 kl. 14:03

Ný skilgreining á fyrirbærinu "íslendingur"

Íslendingur: Manngrey (Humanoid) sem trúir því að Kommúnistaflokkur Íslands sé ýmist Ósjálfstæðiflokkurinn, Varga-Grýlur eða Rangsóttarflokkurinn, eftir því hver jagast í hverjum. Mann-verur þessa fyrirbæris fóru í fýlu þegar Pfizer hafnaði að gera þjóðina að tilraunadýri með skyldusprautu og ærðust þegar sveitarfélög höfðu of fáar snjómokstursvélar í þriggja daga snjóstormi.

Í annað.

Nú liggur fyrir að við eigum ekki neina Íslenskun fyrir hugtökin, Populist og Populism. Búinn að fletta í orðabókum og þær hjálpa ekkert. Nú eru góð ráð dýr því marga snúninga má taka á þessu og prófaði einn í hálfkæringi í síðustu færslu.

Og enn annað.

Rakst á skemmtilega skissu á FB, og þar sem allir eru þar: