15.12.2022 kl. 09:19

Að bíða á hliðarlínunni eða stíga fram; þolraun Hamlets

Það hefur kitlað mig í marga mánuði að nefna nokkuð, sem ég hef iðulega gleymt að koma frá mér, vegna annarrar aðkallandi spennulosunar.

Fjöldi stjórnmálamanna og blaðamanna og annarra áhrifahvata hérlendis hafa haldið kjafti síðustu 33 mánuðina og beðið á hliðarlínu í þeirri von að þeirra tími komi síðar. Einn og einn hefur æmt, en það er meira eins og klór til að geta sagt síðar að þeir hafi maldað í móinn.

Þetta er afneitun á vitjunartíma sínum.

Nú er framkvæmdur (og af einbeittum brotavilja) stærsti glæpur þekktrar mannkynssögu og núna er tíminn sem þú átt að láta í þér heyra, svo öllum sé ljóst og sérstaklega helgum vættum, hvar þú stendur og hvers vegna. Þetta snýst ekki um að vekja neinn með sósíalískri afskiptasemi, því forsjónin, nornirnar þrjár og allir elstu vættir eru að sýna öllu fólk allsstaðar staðreyndina um eitrað ástand hvers og eins (Toxic State).

Hver sannaði vírusinn?

Hver skilgreindi HIV vírusinn?

Enginn vill ræða rekjanleika, allir hanga í hlutdeild djöflatrúar, hver svo sem ástæðan er.

Antivistarnir eru ekkert skárri en meginstraumurinn. Enginn jarðarbúa getur lengur fullyrt að Vírusinn sé staðreynd, að Eitursprauturnar séu bóluefni, eða að Elítan, hvort heldur þeir sem hafa rangsnúið ríkjunum, efnahagsmálunum eða vísindunum hafi nokkra ögn af heiðarleika til að bera.

Eins er með þá elítu sem hefur myndast í Antivismanum. Ég hef látið reyna á það.

Tími "hefðbundinna" aðferða er liðinn og það hefur verið öllum augljóst síðan 11. mars 2020.

Margt má segja frekar, en hluti þess kom fram á besta þætti þessa árs hjá Alex Jones í gær, þann 14. desember 2022. Þáttur sem að mínu mati er efni til að geyma og horfa á til fulls. Í það minnsta fyrsti klukkutíminn, eða fram að setningunni coalition of leaders.

Hægt er að sækja þáttinn bæði á Bitchute (sem heimsbankakerfi KKF er núna að svelta) og á Rumble.

  1. https://www.bitchute.com/video/yWQ6AOpVqxVo/
  2. https://rumble.com/v20oja4-alex-jones-full-wednesday-121422-end-of-the-world-emergency-alert-russia-re.html

Loks er nauðsynlegt að minna þig á tímamóta viðburði, sem þú getur fundið á rás Ron DeSantis Ríkisstjóra Flórída, á Rumble og annan Covid samráðsfund Ron Johnson öldungadeildarþingmanns í Bandaríkjunum, sem einnig má finna á Rumble (en sá fyrri er einnig markverður):

  1. https://rumble.com/v20bgby-governor-ron-desantis-hosts-roundtable-with-surgeon-general-dr.-ladapo.html
  2. https://rumble.com/v1ze4d0-covid-19-vaccines-what-they-are-how-they-work-and-possible-causes-of-injuri.html (lengri útgáfa)
  3. https://rumble.com/v20hgiq-please-share-this-video-covid-19-vaccines-roundtable-highlights-with-senato.html (styttri útgáfa)
  4. https://rumble.com/vt62y6-covid-19-a-second-opinion.html (sá fyrri)

Þessi myndskeið sækir maður og geymir.

Þú getur ekki haft hausinn í sandinum eins og strútur og beðið þess að einhver reddessu; það er stundum nauðsynlegt að þekkja vitjunartíma sinn og að átta sig á að sumir atburðir sögunnar eru einstakir.

Þá mæli ég með athugasemdum Dr. Naomi Wolf og Dr. Robert Malone um þessi mál.

  1. https://rumble.com/v20io8i-dr.-naomi-wolf-comments-on-desantis-power-play-against-americas-medical-sta.html
  2. https://rumble.com/v20mt16-desantis-press-conference-takes-on-the-cdc-politicization-and-military-grad.html

Sem fyrr segir, þetta eru allt myndskeið sem eru tímamótaþættir sem maður sækir og geymir.

Umfram allt skaltu samt spyrja þig hvers vegna þjóðarmorðs elítan á Íslandi minnist ekki enn á The Great Barrington Declaration. Kannski áttar hún sig á að við höfðum fram til október fyrir ári síðan til að slá af og iðrast. Siðan þá fáum við ekki umflúið algjört hrun. Það breytir ekki því hvort einstaklingar geti iðrast og sannað með vitnisburði sínum vilja sinn til yfirbótar (Repentance resolving into redemption).

 

Viðbót 12:43:

Flestir sem ég hef rætt við, hvar sem ég hef komið, síðasta árið eða svo, sem trúðu á lygarapláguna og eitursprauturnar, hafa áttað sig á að það var allt saman lýgi og að elítan er morðóð. Ástæðan fyrir að þú verður lítt var við þetta, er að fólk vill ekki geðjast Antivistum og öfgum þeirra annars vegar og hins vegar að fólk er að bíða eftir að eitthvað gerist sem bendi þeim á leiðina út úr ógöngunum. Staðreyndin er að núverandi valda elíta heimsins, frá hæsta til smæsta, er rúin öllu trausti og "mandate of heaven" afnumið.

Fólk veit að það er engin sýn í boði, sem vísar veginn. Það merkir ekki að hún sé ekki til, aðeins að elstu vættir hafa hana undir gegnsæjum hjúp. Þeim fjölgar mánuð fyrir mánuð, sem fyrir raunsæisnáð skyggnast gegnum hjúpinn.