8.12.2022 kl. 22:27
Fram fram fylking, allir í Davosgallann, strax eftir jól
Eftir áramótin lögleiðir "ríkið" svokallað "hringrásarhagkerfi" og allur efnahagur, öll vísindi, lýðræði, borgararéttindi, málfrelsi og ferðafrelsi, verður lagt fyrir "nefnd."
Til hamingju með sinnuleysið.
Ég setti í færslu fyrir fáeinum dögum spurninguna, veistu hvað ESG Investment er nefnt á Íslensku? Já, þú giskaðir rétt, Davos mafían hérlendis nefnir það Hringrásarhagkerfi.
Var einhver að ræða sturlun og innfallna siðmenningu? Er ég enn sá eini sem sá stjórnarandstöðu og þjóðfélagssamræðu gufa upp haustið 2017?
Spurðu næstu þrjá Íslendinga sem þú hittir tveggja spurninga: a) Veistu hvað fjórða iðnbyltingin er, og b) veistu að það er opinber stjórnarstefna (Ríkissmiðja) á Íslandi?
Svarið sem þú munt uppskera er tómt augnaráð gímalds þar sem áður var hugur.